Gjaldskyld bílastæði hafa verið talsvert milli tannanna á fólki síðan þau tóku að spretta upp eins og gorkúlur um allt land. Fyrirtæki sem reka bílastæðin hafa verið harðlega gagnrýnd og Félag íslenskra bifreiðaeiganda benti Neytendastofu á það í fyrra að tilefni gæti verið til að rannsaka viðskiptahætti þeirra.
„Neytendastofa er búin að staðfesta móttöku og okkur skilst að það sé farin rannsókn í gang,“ sagði Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB, í samtali við fréttastofu á sínum tíma. Nú hefur rannsókn Neytendastofu borið ávöxt.
Parka hlaut hæstu sektina
Á vef Neytendastofu segir að stofnunin hefði komist að þeirri niðurstöðu að fyrirtækin hefðu brotið gegn lögum um góða viðskiptahætti sem og reglum um verðmerkingar með því að veita ekki upplýsingar um öll gjöld tengd stæðunum.
Fyrirtækin sem um ræðir eru Isavia, vegna gjaldheimtu við Reykjavíkurflugvöll, Parka lausnir ehf., Easypark og Green parking ehf. Sektirnar voru á bilinu 200 þúsund krónur til einnar milljónar króna, sem Parka ber að greiða.
Afmörkun ekki nægilega skýr
Þá hafi Neytendastofa talið um að ræða brot á lögum í þeim tilvikum þar sem afmörkun gjaldskyldra bílastæða var ekki nægilega skýr auk þess sem það teldust villandi viðskiptahættir að láta líta út fyrir að sjálfvirk greiðslukerfi eða gjaldtaka væru til staðar, án þess að taka fram að slíkt þyrfti að virkja sérstaklega eða kerfið ekki til staðar.
Loks hafi stofnunin komist að þeirri niðurstöðu að í einu tilfelli hafi fyrirtæki, Parka, brotið gegn reglugerð um viðskiptahætti sem teljast undir öllum kringumstæðum óréttmætir með því að upplýsa neytendur ranglega um að þjónusta þess sé endurgjaldslaus.