Forsetaframbjóðandi skotinn í höfuðið Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 8. júní 2025 22:21 Fólk safnast saman fyrir utan sjúkrahúsið þar sem Miguel Uribe dvelur. EPA Forsetaframbjóðandi í Kólumbíu var skotinn tvisvar í höfuðið á viðburði í höfuðborg landsins á laugardag. Hann berst enn fyrir lífi sínu eftir neyðarskurðaðgerð.
Miguel Uribe, 39 ára hægri-sinnaður kólumbískur forsetaframbjóðandi, varð fyrir árásinni á kosningafundi sem hann stóð fyrir í almenningsgarði í Bogotá á laugardag. Ljósmyndir af atvikinu sýna Uribe útataðan í blóði umkringdur fólki samkvæmt The Guardian. Að auki eru karl og kona slösuð eftir árásina Talið er að árásarmaðurinn sé um fimmtán ára gamall unglingur og var hann handtekinn á vettvangi. Hann slasaðist einnig í árásinni og var farið með hann á sjúkrahús. Ekki liggur fyrir af hverju árásin var framin en lögregla telur að fleiri einstaklingar hafi tekið þátt í skipulagningu hennar. Uribe var fluttur beint á sjúkrahús og fór í skurðaðgerð. María Claudia Tarazona, eiginkona Uribe, segir hann enn berjast fyrir lífi sínu. „Ég vona að Miguel Uribe lifi af,“ sagði Gustavo Petro, forseti Kólumbíu, en Uribe hefur gagnrýnt ákvarðanir Petro harðlega. „Það er það sem ég vil umfram allt,“ sagði Petro.
Kólumbía Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Fleiri fréttir Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Sjá meira