Mbappe í aðal­hlut­verki þegar Frakkar tóku bronsið

Kylian Mbappe kom Frökkum yfir undir lok fyrri hálfleiks.
Kylian Mbappe kom Frökkum yfir undir lok fyrri hálfleiks. Getty/Alex Grimm

Á 35. mínútu fór Karim Adyemi niður í teignum og dómari leiksins dæmdi vítaspyrnu. Eftir það var löng bið þar sem VAR athugaði atvikið. Þá fór dómarinn í skjáinn og ákvað á endanum að gefa ekki vítaspyrnuna heldur að gefa Adyemi gult spjald fyrir leikaraskap.

Það var svo á 45. mínútu leiksins sem að Kylian Mbappé kom Frökkum yfir. Aurelien Tchouameni átti góða fyrirgjöf á fjærstöngina þar sem Mbappe tók á móti boltanum. Hann tók eina hreyfingu til hliðar og kláraði svo snyrtilega fram hjá Ter Stegen í markinu.

Hálfleikstölur voru því 1-0 fyrir Frakklandi, og þeir í bílstjórasætinu fyrir seinni hálfleikinn.

Þjóðverjar komust í nokkur góð færi í seinni hálfleik en Mike Maignan stóð vaktina vel í marki Frakka. Það var svo á 84. mínútu sem Michael Olise skoraði annað mark Frakka eftir undirbúning frá Kylian Mbappe.

Það var loka naglinn í kistuna fyrir Þjóðverjar og Frakkar taka því þriðja sætið í Þjóðadeildinni.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira