Gæti náð 24 stigum þar sem best lætur Lovísa Arnardóttir skrifar 15. maí 2025 08:16 Það verður væntanlega nóg fyrir fólk að gera í sólbaði á Egilsstöðum í dag og næstu daga. Vísir/Vilhelm Í dag verður áfram hæg og breytileg átt og víða bjartviðri, en suðlæg átt átta til fimmtán metrar á sekúndu suðvestan- og vestanlands og skýjað með köflum. Hiti verður á bilinu 13 til 23 stig, hlýjast verður væntanlega áfram á Norður- og Austurlandi, um 23-24 stig þar sem best lætur.
Mesti hiti sem mælst hefur í maímánuði á Íslandi eru 25.6 stig á Vopnafirði 26. maí 1992. Í gær mældist mest 24.2 stig á Egilsstaðaflugvelli og 23.6 stig á Hallormsstað. Það má því vera ljóst að hitinn á landinu núna er með því mesta sem við getum búist við að fá í maí - sannkallaður sumarauki. Í hugleiðingum veðurfræðings kemur fram að við Færeyjar sé hæð sem stjórnar veðrinu hjá okkur um þessar mundir. Hæðin og lægðir suður af Hvarfi beini til okkar hlýju lofti. Þar sem hæðin sé nær okkur en lægðirnar sé þetta hlýja loft jafnframt nokkuð þurrt í grunninn, en taki þó í sig raka frá sjónum á leið sinni til okkar. Áðurnefnd hæð á samkvæmt spám að sitja nærri kyrr við Færeyjar út vikuna og hitabylgjan heldur því áfram. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag og sunnudag: Suðaustan 5-13 m/s suðvestanlands, annars hægari vindur. Víða léttskýjað, en sums staðar þokuloft við ströndina. Hiti 13 til 23 stig yfir daginn, hlýjast fyrir norðan, en svalara í þokunni. Á mánudag og þriðjudag: Hæg breytileg átt eða hafgola og bjartviðri, en líkur á þoku úti við sjóinn. Áfram hlýtt í veðri, einkum inn til landsins. Á miðvikudag: Sunnanátt, skýjað með köflum og dálítil væta vestanlands. Hiti 10 til 18 stig.
Veður Færð á vegum Mest lesið Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Innlent Fleiri fréttir Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Sjá meira