Golf

Tveir Ís­lendingar gætu komist á US Open eftir dramatík hjá Dag­bjarti

Sindri Sverrisson skrifar
Dagbjartur Sigurbrandsson stóð sig frábærlega undir pressu, þegar myrkrið var að skella á, í Illinois í gærkvöld og komst á lokastig úrtökumótsins fyrir US Open.
Dagbjartur Sigurbrandsson stóð sig frábærlega undir pressu, þegar myrkrið var að skella á, í Illinois í gærkvöld og komst á lokastig úrtökumótsins fyrir US Open. mynd/@metamateurga

Ísland mun eiga tvo fulltrúa á lokastigi úrtökumótsins fyrir US Open risamótið í golfi, eftir að Dagbjartur Sigurbrandsson kom sér þangað með hádramatískum hætti, í bráðabana.

Dagbjartur, eða Dabbi eins og hann er kallaður á heimasíðu US Open, keppti á undamóti í Illinois í gær þar sem 120 kylfingar kepptu um sex laus sæti á lokastiginu.

Hann lék hringinn á -2 höggum og þurfti svo að bíða lengi eftir öðrum kylfingum áður en ljóst varð að hann þyrfti að fara í fimm manna bráðabana um tvö síðustu lausu sætin. Og það var nánast komið myrkur þegar Dagbjartur tryggði sér farseðilinn á lokastig úrtökumótsins, eftir þriggja holu bráðabana.

Áður var ljóst að Gunnlaugur Árni Sveinsson færi á lokastigið sem einn af fimmtíu efstu á heimslista áhugakylfinga.

Lokastigið skiptist í alls þrettán 36 holu mót, þrjú sem fara fram 19. maí og tíu sem fara fram 2 júní, og á hverju þeirra er ákveðinn fjöldi farseðla í boði á sjálft Opna bandaríska mótið. Í fyrra komust alls 73 af 937 þátttakendum í gegnum lokastigið og inn á mótið.

US Open fer svo fram á Oakmont Country Club um miðjan júní.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×