„Það er auðvitað ánægjulegt að okkur sé að fjölga, en það gerir líka kröfur. Við verðum að tryggja að það sé pláss og stuðningur bæði fyrir börn, aldraða og borgara sem eiga erfitt,“ er haft eftir borgarstjóranum Avaaraq Olsen í fréttatilkynningu.
Þar segir að íbúafjölgunin sé að gerast á hraða sem kalli á aðgerðir og endurhugsun. Því vinni sveitarfélagið Sermersooq að því að bæta þjónustu borgarinnar hvað varðar húsnæði, dagvistun, skóla og öldrunarþjónustu.

Nuuk hefur á undanförnum árum verið að fá á sig sífellt alþjóðlegri blæ, með nýjum íbúahverfum, nýrri gámahöfn og nú síðast með nýjum alþjóðaflugvelli sem getur tekið við stórum þotum.
Fyrir átta árum gerði Stöð 2 tíu mínútna þátt um mannlíf í Nuuk, sem sjá má hér:
Nuuk, sem áður hét Godthåb, er langstærsti bær Grænlands en þar búa 35 prósent af íbúum landsins. Samkvæmt tölum Hagstofu Grænlands bjuggu alls 56.542 í landinu þann 1. janúar síðastliðinn. Íbúatala Nuuk náði tíu þúsund manns árið 1980 sem þýðir að fjöldi bæjarbúa tvöfaldaðist á 45 árum. Árið 1950 bjuggu um eittþúsund manns í bænum.
Yfir 60 prósent íbúa Grænlands búa í fimm stærstu bæjum landsins; í Nuuk, Sisimiut, Ilulissat, Aasiaat og Qaqortoq. Um 5.400 manns búa í næststærsta bænum Sisimiut og um 4.700 manns í Ilulissat, sem er í þriðja sæti.
Í janúar 2017 var Stöð 2 í beinni útsendingu frá höfninni í Nuuk sem rifja má upp hér: