„Magnús Öder hefði fengið þrjú rauð fyrir sömu brot“ Hjörvar Ólafsson skrifar 24. apríl 2025 21:46 Einar vonsvikinn. Vísir/Diego Einar Jónsson, þjálfara Fram, fannst dómgæslan ekki sanngjörn þegar lið hans fékk vænan skell í þriðja leik sínum við FH í undanúrslitum Olís-deildar karla í handbolta í Kaplakrika í kvöld. Einar benti réttilega á að staðan væri enn björt í herbúðum Fram þrátt fyrir stórt tap. „
Þetta var leikur fram að lokum fyrri hálfleiks. Þá klúðruðum við nokkrum dauðafærum í röð í stöðunni 14-9 og eftir það má segja við höfum kastað inn hvíta handklæðinu. Það var ákveðin andleg þreyta sem gerði vart við sig og það vantaði upp á hugarfarið til þess að koma okkur almennilega inn í leikinn aftur,“ sagði Einar Jónsson, þjálfari Fram, eftir að lokaflautan gall. „Þegar allt kemur til alls er bara einn leikur og það hefði ekkert endilega verið betra að tapa einu eftir hörkuleik. Við bara ýtum þessum leik frá okkur og núllstillum okkur fyrir leikinn á sunnudaginn kemur. Við erum ennþá 2-1 yfir og þurfum bara einn vinning í viðbót. Staðan er því ennþá björt þrátt fyrir þungt kvöld,“ sagði Einar þar að auki. „Það var raunar þannig að við hefðum þurft að spila eins og heimsmeistarar til þess að hafa betur í þessum leik. Leikmenn FH fengu að komast upp með hluti í varnarleik sínum sem við fengum alls ekki hinu megin. Ég held að Magnús Öder hefði verið kominn með þrjú rauð spjöld ef hann hefði varist eins og FH-ingar gerðu að þessu sinni,“ sagði hann ósáttur. „Mér fannst leikurinn líka illa dæmdur þegar við unnum í síðasta leik þannig að ég er ekki að segja að við séum að vinna eða tapa út af dómgæslu. Ég er bara að kalla eftir því að fá samræmi í dómgæsluna og að við fáum að gæta jafnræðis í því hvernig við verjumst. En nú förum við aftur á móti bara að einbeita okkur að því að búa okkur undir leikinn á sunnudaginn,“ sagði hann um dómarapar leiksins.
Olís-deild karla Fram Mest lesið Sjáðu þegar allt sauð upp úr í Kópavogi og glæsimark Sveins Íslenski boltinn Ólafur Ingi: „Mér skilst að hann hafi bara kýlt hann“ Íslenski boltinn Gætu orðið meistarar eftir vinnu á mánudaginn Íslenski boltinn Bjarni Jó hættur Íslenski boltinn Algjört bíó í Eyjum: Ótrúlegt klúður og tvö gul og rautt á sömu sekúndu Íslenski boltinn „Margt sem við þurfum að laga“ Körfubolti „Mikil framför en því miður ekki nóg“ Körfubolti Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Körfubolti Landsliðskonan ólétt og leggur skóna á hilluna Íslenski boltinn KA-menn brotlentu í Garðabæ Handbolti Fleiri fréttir Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Sjá meira