Rigning í flestum landshlutum og kaldara loft Atli Ísleifsson skrifar 11. apríl 2025 07:12 Á morgun má gera ráð fyrir suðvestlægri átt. Vísir/Vilhelm Síðdegis verða skil skammt undan Reykjanesi og í kvöld ganga þau norðaustur yfir landið með rigningu í flestum landshlutum, einkum sunnan- og vestanlands.
Frá þessu segir á vef Veðurstofunnar. Þar kemur fram að það hafi verið býsna hlýtt að undanförnu, en í kjölfar skilanna sæki kaldara loft að með tilheyrandi útsynningi. „Á morgun verður áttin því suðvestlæg, víða stinningskaldi og él eða slydduél, en léttskýjað austanlands. Hiti 0 til 8 stig, hlýjast eystra. Annað kvöld lægir og frystir allvíða. Austan strekkingur við suðurströndina á laugardag og dálítil rigning eða slydda, en hægari vindur í öðrum landshlutum og yfirleitt þurrt. Síðdegis fer hins vegar að bæta í vind og þegar líður á kvöldið er útlit fyrir norðaustan hríðarveður á Austurlandi. Á sunnudag er svo útlit fyrir ákveðna norðaustanátt með snjókomu um landið norðanvert, en úrkomulítið veður á Suðvesturlandi,“ segir í tilkynningunni. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Austan 8-15 m/s við suðurströndina og dálítil rigning eða slydda, en hægari annars staðar og yfirleitt þurrt. Hiti 1 til 8 stig að deginum. Bætir í vind síðdegis, norðaustan 10-18 um kvöldið og fer að snjóa austanlands. Á sunnudag (pálmasunnudagur): Norðaustan 13-20 og snjókoma eða slydda, en úrkomulítið suðvestantil. Hægari sunnan- og austanlands síðdegis, en norðaustan 18-23 um landið norðvestanvert. Hiti kringum frostmark, en 0 til 5 stig sunnan heiða. Á mánudag: Norðaustan 8-18, hvassast norðvestantil. Víða él og hiti um eða yfir frostmarki, en þurrt að mestu á Suðvesturlandi með hita að 7 stigum yfir daginn. Á þriðjudag: Norðaustanátt og slydda eða snjókoma austanlands, en él á Norðurlandi og Vestfjörðum. Hiti breytist lítið. Á miðvikudag: Norðaustanátt og skúrir eða él norðan- og austantil. Hiti 0 til 7 stig yfir daginn, mildast sunnanlands. Á fimmtudag (skírdagur): Útlit fyrir norðanátt með snjókomu eða éljum norðan- og austanlands.
Veður Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Innlent Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Innlent Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Erlent Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Erlent Fleiri fréttir Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Sjá meira