Tónlist, græjur og Ari Eldjárn í sviðsljósinu ELKO 3. apríl 2025 08:30 Samkvæmt könnun ELKO er 71% landsmanna boðið í fermingarveislu í ár og því ljóst að fermingar verða á milli tannana á landanum næstu vikurnar. ELKO býður upp á mikið úrval fermingargjafa í ólíkum verðflokkum. ELKO hefur nýlokið við árlega fermingarkönnun sína, þar sem yfir 4.000 manns af póstlista fyrirtækisins tóku þátt. Könnunin varpaði ljósi á eftirminnilegustu fermingargjafirnar, hvaða skemmtikrafta fólk vill helst fá í veisluna og fleiri áhugaverða þætti tengda fermingum. Fram kom að um 71% landsmanna er boðið í fermingarveislu í ár og því ljóst að fermingar verða á milli tannana á landanum næstu vikurnar.
Eiga skemmtikraftar heima í fermingarveislum? Þegar spurt var: „Hvaða skemmtikraft myndir þú velja til þess að koma fram í fermingarveislu?“ var Ari Eldjárn langvinsælastur með yfir 300 atkvæði en um var að ræða opna spurningu. Aðrir vinsælir skemmtikraftar voru Herra Hnetusmjör, Laddi, Pétur Jóhann, Friðrik Dór og Steindi. Áhugavert er að sjá að þó atkvæði FM95Blö teymisins væru sett saman með atkvæðum Sveppa og Péturs Jóhanns þá kæmist hópurinn einungis í annað sæti á listanum, 45 atkvæðum á eftir Ara Eldjárni sem trónir á toppinum. Sé aldurshópurinn 18 til 35 ára skoðaður sérstaklega má sjá að Laddi og Eyþór Ingi detta út af listanum og inn koma Villi Neto og Sveppi í þeirra stað og því ljóst að Laddi er enn geysilega vinsæll meðal eldri markhópa. Mörgum þótti of mikið lagt í fermingarveislur og allt tal um skemmtikrafta alls ekki eiga við. Um 50% svarenda þykir of mikið lagt í fermingarveislur í dag. Þá sögðu um 6% að það hefði verið skemmtikraftur í síðustu fermingarveislu sem þau fóru í og má því segja að það sé undantekning að skemmtikraftar komi fram í fermingarveislum. Höldum við í hefðirnar þegar kemur að fermingum? Um 70% fá rafrænt boð í veislur en einungis um 27% fá prentað boðskort. 94% svarenda fermdust í kirkju og eru niðurstöðurnar óbreyttar á milli ára. Sérmerktar servíettur, myndakassar og nammibarir eru óþarfi í fermingarveisluna samkvæmt könnuninni, en heitir brauðréttir, pinnamatur, kaldar brauðtertur og kransakökur eru eitthvað sem kemur til með að hitta í mark. Því er ljóst að hefðbundin nálgun í veitingaúrvali kemur til með að hitta beint í hjartastað á meðan sérmerktar servíettur eru á undanhaldi. Græjur og úr meðal eftirminnilegustu fermingargjafanna Þegar spurt var um eftirminnilegustu fermingargjöfina nefndu 16% svarenda „græjur“ og var þá í flestum tilfellum átt við hinar klassísku fermingargræjur. Úr voru í öðru sæti með 12% svarhlutfall, en þar á eftir komu tölvur eða fartölvur með 7% og skartgripir með 6%. Peningagjafir, sem löngum hafa verið algengar, voru aðeins nefndar af 5% svarenda og því ljóst að ein algengasta gjöfin er ekki sú eftirminnilegasta. Aðrar gjafir, svo sem rúm, myndavélar og utanlandsferðir komu einnig fram í svörunum, en 41% nefndi eitthvað sem féll undir flokkinn „annað“, en það bendir til mikillar fjölbreytni í gjöfum. Þegar spurt var sérstaklega út í hvaða raftæki væru efst á óskalistanum ef fólk væri að fermast í dag voru fartölvur á toppnum, en þar á eftir komu snjallsímar, heyrnartól, snjallúr og sjónvörp. Leikjatölvur og gaming aukahlutir ásamt hár- og snyrtivörum koma einnig ofarlega á blaði. Sé horft á sömu spurningu almennt koma peningar efst á blað, svo raftæki og þar næst utanlandsferðir. Gera má svo ráð fyrir að hin vinsæla Ninja Creami ísvél komist á óskalista landsmanna í ár hvort sem um er að ræða fermingar, brúðkaup eða jólagjafir. Vélin hefur farið sem stormsveipur um samfélagsmiðla þar sem keppst er um að deila uppskriftum af besta ísnum. Vélin var ekki valkostur í fermingarkönnuninni í ár. Hvað á að gefa fermingarbarninu mikinn pening? Rétta upphæðin til að gefa er líklega spurning sem brennur á mörgum, enda ein algengasta gjöfin sem fermingarbörn fá. Þegar spurt var hversu háa fjárhæð fólk miðaði við sögðu um 70% að upphæðin væri á bilinu 7.000-15.000 krónur, en 15,4% miða við um 16.000-20.000 krónur. Væntanlega hefur skyldleiki við fermingarbarnið þarna einhver áhrif á upphæðina en gera má ráð fyrir að +/- 10.000 krónur sé ágætis viðmið í þessum efnum. Þegar spurt var um gjafir foreldra til fermingarbarna hækkaði upphæðin talsvert en um 45% svarenda miða við að verja um 76.000-150.000 krónum í fermingargjafir ef þau væru að ferma barnið sitt í ár. Vörumerki Apple líklegast ofarlega á listum margra Apple er ríkjandi vörumerki þegar kemur að umræðu um fermingargjafir hvort sem um er að ræða iPhone, Airpods, iPad eða Macbook. En taka verður fram að nær enginn munur var á iPhone og Samsung þegar spurt var um hvernig síma svarendur myndu velja sér í dag. PC tölvur fengu um 62% atkvæða á móti 38% þegar samskonar spurning var lögð fyrir varðandi fartölvur. Sé hópurinn 18-35 ára skoðaður sérstaklega segjast 47,5% frekar myndu velja sér Apple Macbook og 62% sögðust myndu velja iPhone fram yfir keppinautinn. Það má því gera ráð fyrir að Apple vörur verði vinsælar í kringum fermingarnar í ár. ELKO hefur einfaldað viðskiptavinum sínum valið á réttu fermingargjöfinni á elko.is/fermingar en skilaréttur er á öllum fermingargjöfum með skilamiða er til 30. júní.
Fermingar Mest lesið Hraustustu hjón Garðabæjar selja glæsihýsi Lífið Brynjar skiptir Aroni út Lífið Ævintýralegur sumarfögnuður í Haukadal Lífið Kveða orðróminn í kútinn: „Það eru engar deilur“ Lífið Endanlega búið spil hjá Johnson og Martin Lífið Svona hljómar Himinn og jörð í flutningi Svölu Lífið Hvað í ósköpunum gerði James Bond á Íslandi? Leikjavísir Romeo Beckham og Kim Turnbull sögð hætt saman Lífið Unga fólkið sækir í svissnesk TAG Heuer Lífið samstarf „Okkur var ekkert cancelað, nema hann bara gerði það sjálfur“ Tónlist Fleiri fréttir Unga fólkið sækir í svissnesk TAG Heuer A Country Night in Nashville kemur í Hörpu Orsakir flösu og áhrifarík meðferð „Það er alls ekki í tísku að brenna“ Iðnaðarmaður ársins 2025 - Þorlákur er kominn í úrslit Heilög tvenna fyrir hlauparann! Yfir tvö hundruð tryllitæki sýnd um helgina Iðnaðarmaður ársins 2025 - Máni er kominn í úrslit Bakið er hætt að hefna sín Iðnaðarmaður ársins 2025 - Þorleifur er kominn í úrslit Iðnaðarmaður ársins 2025 - Eyjólfur er kominn í úrslit Iðnaðarmaður ársins 2025 – Róbert er kominn í úrslit Iðnaðarmaður ársins 2025 - Þór er kominn í úrslit Með andlit sem fleiri en bara mæður þeirra geta elskað Iðnaðarmaður ársins 2025 - Elsa er komin í úrslit Iðnaðarmaður ársins - Davíð Már er kominn í úrslit Stuðla að heilbrigði með lífrænum barnamat Komdu með í ævintýri til Ítalíu Viltu kynnast töfrum Taílands? Ný og endurbætt snyrtivörudeild opnuð í Hagkaup Pub Quiz hvar sem er, hvenær sem er! Fyrsta háhælahlaup Íslandssögunnar Ný hugsun í heimi brúnkuvara Fyrirtæki á Norðurlandi styðja SÁÁ Komdu með á ströndina — Ný sumarlína frá Moomin Arabia BAUHAUS býður þér í glæsilega afmælisveislu! Aldrei verið eins einfalt að bóka tíma Tork gaur: BMW neglir fallegan framenda Batinn á vefjagigt kom úr óvæntri átt Sjá meira