Andrea allt í öllu og Aldís Ásta deildarmeistari Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 19. mars 2025 21:17 Andrea Jacobsen í leik með íslenska landsliðinu. Vísir/Hulda Margrét Andra Jacobsen var allt í öllu þegar Blomberg-Lippe lagði Thuringer í efstu deild kvenna í þýska handboltanum. Aldís Ásta Heimisdóttir er deildarmeistari í Svíþjóð.
Andrea gerði sér lítið fyrir og var markahæst allra með átta mörk úr aðeins níu skotum í fimm marka sigri Blomberg-Lippe í kvöld, lokatölur 36-31. Díana Dögg Guðjónsdóttir er enn frá vegna meiðsla og lék ekki með Blomberg-Lippe í kvöld. Eftir sigurinn er Íslendingaliðið komið upp í 3. sæti með 29 stig líkt og bæði Dortmund og Thuringer. Sandra Erlingsdóttir skoraði fjögur mörk þegar lið hennar Metzingen tapaði gegn toppliði Ludwigsburg með 13 marka mun, lokatölur 41-28. Metzingen er í 6. sæti með 20 stig. Svíþjóð Aldís Ásta Heimisdóttir og stöllur í Skara urðu deildarmeistarar í kvöld eftir sex marka sigur á Skuru, lokatölur 28-22. Ungverjaland Í Ungverjalandi átti Bjarki Már Elísson fínan leik þegar Veszprém lagði Ferencváros í 8-liða úrslitum bikarkeppninnar. Bjarki Már skoraði fjögur mörk í leik sem Veszprém vann með 16 marka mun, lokatölur 49-33. Aron Pálmarsson var ekki með að þessu sinni. Janus Daði Smárason skoraði tvö mörk fyrir Pick Szeged sem er einnig komið í undanúrslit eftir sigur á Györ. Sviss Hornamaðurinn Óðinn Þór Ríkharðsson átti enn einn stórleikinn þegar Kadetten tapaði mjög svo óvænt fyrir St. Gallen í efstu deild í Sviss. Lokatölur 33-32 St. Gallen í vil þó svo að Óðinn Þór hafi skorað 9 mörk. Þetta var fyrsta tap Kadetten í rúmt hálft ár. Kadetten er sem fyrr í 1. sæti með 43 stig en St. Gallen er í bullandi fallbaráttu með aðeins 16 stig.
Handbolti Sænski handboltinn Ungverski handboltinn Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport „Gangandi martröð“ Enski boltinn Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Enski boltinn Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Laus úr banni aðeins mánuði eftir að hafa tekið kókaín Sport Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Enski boltinn „Var ekki langt frá því að tárast“ Handbolti Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán Fótbolti Dagskráin í dag: Liverpool ætlar að landa fyrsta sigrinum Sport Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Enski boltinn Fleiri fréttir „Var ekki langt frá því að tárast“ Sá besti í ham en meistarar Vals þurftu að hafa fyrir sigrinum Fullkomin byrjun eftir heimkomu Dags Árna Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli „Leikmenn í hópnum sem þurfa að taka við keflinu“ Lærisveinar Guðjóns Vals ekki lengi að jafna sig á tapi í fyrsta leik Sauð upp úr og Bjarka fleygt í jörðina Haukur var markahæsti leikmaður síns liðs í naumu tapi Magdeburg hafði betur í jöfnum Íslendingaslag Titilvörnin byrjar vel hjá Díönu og Elínu Stórleikur Donna dugði skammt Valsmenn slógu í klárinn undir lokin Arnar Freyr fagnaði sigri í frumrauninni með Flensburg en naumt tap hjá Arnóri Jóhanna Margrét skoraði fimmtán þegar Haukar unnu Meistarakeppnina Eyjakonur og Haukar meistarar samkvæmt spánni Gísli tekur við og stýrir Víkingi í næstefstu deild Reynir Þór með fína frammistöðu í tapi Víkingar gefa frá sér sætið í Olís-deildinni Sá rautt eftir nokkrar sekúndur: „Maður lætur muna eftir sér“ Óvænt hætt sem þjálfari af persónulegum ástæðum Ólafur fékk rautt spjald eftir sjö sekúndur í endurkomunni Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Heiðursmannasamkomulag var svikið: „Kom okkur á óvart“ Einn af strákunum okkar biðlar til Trump um samning Áfall í undirbúningi Íslands fyrir HM Gísli Þorgeir með níu mörk í níu skotum þegar Magdeburg vann Ofurbikarinn Díana varð meistari meistaranna eftir vítakeppni Fjórtán ára undrabarn spilar með Þorsteini Leó Landsliðskona í Val Sjá meira