Fótbolti

Brynjólfur kláraði leik 38 dögum síðar

Sindri Sverrisson skrifar
Brynjólfur Willumsson skallar boltann í leiknum við Heracles þegar leikurinn hófst, 21. desember.
Brynjólfur Willumsson skallar boltann í leiknum við Heracles þegar leikurinn hófst, 21. desember. Getty

Brynjólfur Willumsson og félagar hans í Groningen tóku þátt í mjög óvenjulegum leik í kvöld þegar þeir spiluðu síðustu tólf mínúturnar í viðureign sinni við Heracles, í hollensku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Liðin mættust upphaflega 21. desember en ekki tókst að ljúka leiknum þá. Ólæti voru á meðal áhorfenda og einn stuðningsmaður féll úr stúkunni og slasaðist.

Dómarinn ákvað því að flauta leikinn af og það var ekki fyrr en í kvöld sem að síðustu tólf mínúturnar voru leiknar.

Liðin þurftu að fara eftir ýmsum reglum þessar síðustu tólf mínútur. Leikmenn sem áttu að vera í banni í upphaflega leiknum voru enn í banni í kvöld, nýir leikmenn sem komu í janúarglugganum máttu ekki spila, en leikmenn sem hrist höfðu af sér meiðsli gátu hins vegar spilað. Þá þurftu þjálfarar liðanna að horfa til þess hve margar skiptingar þeir voru búnir að gera í leiknum í desember.

Staðan var 1-1 frá því í desember, og lið Brynjólfs manni færra út af rauðu spjaldi, en engin mörk voru skoruð í kvöld og því lauk leiknum 1-1.

Groningen er því enn stigi fyrir ofan Heracles, með 21 stig í 14. sæti, fjórum stigum frá umspilsfallsæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×