Lífið

Bleikur draumur í Hafnar­firði

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Bogadregin hurðaop, franskir gluggar og vegglistar gefa heimilinu mikinn karakter.
Bogadregin hurðaop, franskir gluggar og vegglistar gefa heimilinu mikinn karakter.

Innst inni í botnlangagötu við Stuðlaberg í Hafnarfirði er að finna reisulegt parhús á tveimur hæðum. Húsið var byggt árið 1990 en hefur fengið sjarmerandi endurbætur á undanförnum árum. 

Flæðið í húsinu er gott og skipulagið nútímalegt. Eignin telur alls 150 fermetra og skiptist í fjögur svefnherbergi, eldhús sem er opið inn til borðstofu og stofu, gestasalerni, baðherbergi og sjónvarpshol.

Í eldhúsinu er hvít innrétting með gylltum höldum, viðarplötu á borðum og notalegur borðkrókur. Á gólfum er ljóst og vandað vínylparket. 

Rómantískur stíll er áberandi á heimilinu þar sem ljósbleikir listatónar, bogadregin hurðaop, vegglistar og franskir gluggar eru í aðalhlutverki. Á gólfum er ljóst vínylparket.

Í stofunni má sjá klassískar Hansahillur í bland við nýtískulegar mublur. Fyrir miðju rýminu hangir stílhreinn svartur arinn úr loftinu sem setur skemmtilegan svip á heildarmyndina.

Ásett verð fyrir eignina er 122,9 milljónir.

Nánari upplýsingar á fasteignavef Vísis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.