Handbolti

Engin ó­vænt tíðindi en stórsigrar á HM í kvöld

Aron Guðmundsson skrifar
Svíar, sem mættu okkur Íslendingum tvívegis í aðdraganda HM, áttu ekki í neinum vandræðum með landslið Japan í kvöld
Svíar, sem mættu okkur Íslendingum tvívegis í aðdraganda HM, áttu ekki í neinum vandræðum með landslið Japan í kvöld Vísir/EPA

Leikir kvöldsins á HM í handbolta buðu ekki upp á nein óvænt tíðindi. Danir burstuðu til að mynda Túnis á heimavelli og Svíar hefja HM á sigri.

Danir hafa nú unnið báða leiki sína til þessa í B-riðli. Eftir sigur gegn Alsír í fyrstu umferð mættu þeir Túnis í kvöld og skemmst er frá því að segja að sigur Danmerkur hafi aldrei verið í hættu í leik sem lauk með ellefu marka sigri þeirra, 32-21. Danir og Ítalir eru með fullt hús stiga á toppi B-riðils eftir tvo sigra í fyrstu tveimur leikjum riðlakeppninnar.

Í C-riðli vann Austurríki svo mikilvægan tveggja marka sigur á Katar, 28-26. En fyrr um daginn hafði Frakkland lagt Kúveit nokkuð örugglega af velli. Frakkar og Austurríkismenn eru með fullt hús stiga eftir fyrstu tvær umferðirnar.

Og þá hófst keppni í F-riðli í dag og í seinni leiknum unnu Svíar afar sannfærandi sigur á Japan 39-21. Sebastian Karlsson fór mikinn í markaskorun fyrir Svía í leiknum með alls átta mörk. Fyrr í dag í sama riðli unnu Spánverjar einnig sannfærandi sigur á Síle.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×