Handbolti

Á­nægja með Dag og hetjan hyllt

Sindri Sverrisson skrifar
Dagur Sigurðsson og hans menn í króatíska landsliðinu voru ekki í neinum vandræðum með Barein í gærkvöld.
Dagur Sigurðsson og hans menn í króatíska landsliðinu voru ekki í neinum vandræðum með Barein í gærkvöld. Getty/Luka Stanzl

Króatar, undir stjórn Dags Sigurðssonar, hófu HM í handbolta af krafti í Zagreb í gærkvöld og völtuðu yfir Bareinana hans Arons Kristjánssonar. Fyrrverandi aðstoðarþjálfari Króatíu hrósar Degi og fyrirliðanum Domagoj Duvnjak, sem var hylltur sérstaklega af áhorfendum en hann er á sínu síðasta stórmóti.

Strákarnir hans Dags unnu 36-22 sigur í gærkvöld og þessi byrjun hefur eflaust ekki slegið á væntingar heimamanna sem ætla sér eflaust langt á mótinu. Dagur segist þó ekki finna fyrir mikilli pressu, þó eflaust sé hún til staðar.

Boris Dvorsek, fyrrverandi aðstoðarþjálfari Króatíu, segir að hafa verði í huga að Barein sé ekki eitt af erfiðustu liðunum á mótinu. Næsti leikur sé svo við álíka andstæðing, Argentínu, sem þó sé mögulega aðeins sterkara lið en Barein.

„Það er gott að við skulum byrja á tveimur svona leikjum. Og þarna gerði Dagur vel, því hann lét allt liðið spila. Allir spiluðu og fengu góðar mínútur. Að mínu mati ætti að gera það sama gegn Argentínu. Þetta er nefnilega frábær æfing fyrir mikilvægu leikina sem fylgja í kjölfarið, fyrst gegn Egyptalandi og svo í milliriðli við Ísland og Slóveníu,“ segir Dvorsek við Tportal.

„Það er mjög mikilvægt að hafa eins marga leikmenn og hægt er í toppformi, því þetta er langt mót. Það sem heillaði mig sérstaklega er hve rosalega hreyfanlegir menn voru í 6-0 vörninni. Því leikmenn Barein eru fljótir, góðir í að finta, ekki klassískir skotmenn en við lokuðum miðsvæðinu afar vel,“ segir Dvorsek en ítrekar að Barein sé ekki eitt besta lið mótsins.

Á fimmtu mínútu leiksins í gær var Duvnjak, sem klæðist treyju númer fimm, hylltur sérstaklega. Stuðningsmenn rúlluðu út gríðarstórum fána með mynd af hetjunni sinni en Duvnjak, sem er 36 ára, hefur spilað fyrir landsliðið frá árinu 2006 og var lengi í hópi allra bestu leikmanna heims.

„Duvnjak var mjög, mjög góður í fyrri hálfleiknum,“ sagði Dvorsek en segir ljóst að fyrsta stóra prófið hjá Króötum sé á sunnudaginn, gegn Egyptum.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×