Innlent

Fleiri segjast and­vígir aðild að ESB en hlynntir

Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar
Ísland sótti um aðild að ESB árið 2009 og hófust viðræður um ári síðar. Í mars 2015 óskuðu íslensk stjórnvöld eftir því að Ísland yrði ekki lengur talið í hóp umsóknarríkja og lauk þá viðræðum.
Ísland sótti um aðild að ESB árið 2009 og hófust viðræður um ári síðar. Í mars 2015 óskuðu íslensk stjórnvöld eftir því að Ísland yrði ekki lengur talið í hóp umsóknarríkja og lauk þá viðræðum. Getty

Fleiri eru andvígir aðild að Evrópusambandinu en hlynntir samkvæmt nýrri könnun Maskínu. Meirihluti vill þó að þjóðin fái að ganga til atkvæðagreiðslu um málið. 

Könnunina framkvæmdi Maskína fyrir fréttastofu og eru svör nokkuð á reiki. 42,7 prósent svarenda segjast andvígir aðild að ESB. Tæp 38 prósent eru hlynnt og 19,8 prósent í meðallagi hlynnt eða andvíg.

Fleiri segjast andvígir aðild að ESB en hlynntir. Þegar fólk er spurt hvort það myndi greiða atkvæði með eða á móti því að Íslandi taki aftur upp aðildarviðræður við sambandið eru niðurstöður aðrar.Vísir/Maskína

Þegar fólk er spurt um afstöðu til þjóðaratkvæðagreiðslu um að Ísland taki aftur upp aðildarviðræður við sambandið segjast 57,8 prósent hlynntir en 25 prósent andvígir. Og ef slík atkvæðagreiðsla færi fram myndu tæp 51 prósent greiða atkvæði með upptöku viðræðna en tæp 50 prósent á móti.

Jón Steindór Valdimarsson er formaður Evrópuhreyfingarinnar.Viðreisn

Staðan hnífjöfn

Jón Steindór Valdimarsson, formaður Evrópuhreyfingarinnar og nýr aðstoðarmaður fjármála- og efnahagsráðherra segir niðurstöðurnar sýna afgerandi afstöðu fólks til þjóðaratkvæðagreiðslu um málið.

„Síðan virðist það algjörlega vera hnífjafnt hvernig menn ætla síðan að greiða atkvæði í þjóðaratkvæðagreiðslunni. Þannig þetta sýnir í fyrsta lagi finnst mér að það er mikill áhugi fyrir því að halda þessa atkvæðagreiðslu og það er alveg í járnum eins og staðan er í dag, en það hefur nótabene ekki mikið farið fram á þessu stigi máls eðlilega, en þá getur þetta farið á hvorn veginn sem er.“

Andvígir vilji greiða atkvæði um málið

„Þetta sýnir okkur líka að þeir sem eru andvígir vilja líka kjósa. Því þessu hefur stundum verið stillt þannig upp að það séu bara þeir sem eru hlynntir aðild sem vilja þessa kosningu en svo er greinilega alls ekki.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×