Erlent

Á­rásar­maðurinn skotinn til bana

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Lögreglumenn á vettvangi á Bourbon-stræti eftir að maður ók þar í gegnum mannmergðina og myrti tíu manns.
Lögreglumenn á vettvangi á Bourbon-stræti eftir að maður ók þar í gegnum mannmergðina og myrti tíu manns. AP

Árásarmaður sem ók bíll inn í mannfjölda í New Orleans í morgun, myrti tíu og særði um 35 manns, var skotinn til bana af lögreglu þegar hann steig út úr bíl sínum eftir árásina.

Fréttamiðillinn ABC greinir frá því. 

Bílnum var ekið á fólk sem var saman komið til að fagna áramótunum á Bourbon-stræti í New Orleans þar sem er að finna fjölda vinsælla veitinga- og skemmtistaða. Atvikið átti sér stað á horni Bourbon-strætis og Canal-strætis um klukkan 3:15 að staðartíma, eða um 9:15 að íslenskum tíma.

Maðurinn keyrði ekki aðeins niður fólk heldur skaut hann einnig úr byssu út úr bílnum. Að minnsta kosti tveir lögregluþjónar voru skotnir og særðir samkvæmt lögregluyfirvöldum.

LaToya Cantrell, bæjarstjóri New Orleans, lýsti atvikinu sem hryðjaverkaárás en alríkislögregla Bandaríkjanna hefur beðið með að nota það hugtak. Anne Kirkpatrick, lögregluforingi í New Orleans, segir ökumanninn hafa reynt að drepa eins marga og mögulegt er.

Joe Biden hefur verið í sambandi við Cantrell til að veita bæjarstjóranum stuðning segir í yfirlýsingu frá Hvíta húsinu. „Alríkislögreglan er þegar á vettvangi til að styðja við lögregluna í rannsókn málsins og verður haldið upplýstum áfram út daginn,“ segir einnig í yfirlýsingunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×