Sif gaf Fortuna síðustu treyju föður síns Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. desember 2024 23:19 Sif Atladóttir og Benno Beiroth með treyjurnar tvær. Það var einmitt Benno Beiroth sem fékk Atla til að koma til Fortuna Düsseldorf á sínum tíma. @f95 Sif Atladóttir færði Fortuna Düsseldorf rausnarlega gjöf í síðustu viku og félagið þakkar henni innilega fyrir á miðlum sínum.
Sif gaf þarna félaginu síðustu Fortuna Düsseldorf treyjuna sem faðir hennar, Atli Eðvaldsson, spilaði í. Á móti fékk hún að gjöf treyju með mynd af föður sínum en í þessari treyju hljóp Andreas Turnsek Reykjavíkurmaraþon í ágúst til heiðurs Atla. Sif fæddist í Düsseldorf þar sem faðir hennar lék á árunum 1981 til 1985. Treyjan sem Sif gaf hans gamla félagi er árituð af Atla. Hann lést árið 2019 eftir erfið veikindi. Sif er fyrrum landsliðskona, atvinnumaður og margfaldur Íslandsmeistari. Hún lék 90 A-landsleiki fyrir Íslands og alls hundrað leiki fyrir öll landslið. Treyjan sem Sif fékk á móti er full af áritunum frá fyrrum liðsfélögum Atla. Benno Beiroth, heiðursfélagi í Fortuna Düsseldorf, tók við treyjunni fyrir hönd félagsins. Hann náði í Atla til Fortuna á sínum tíma en Atli kom þangað frá Borussia Dortmund. Atli skoraði fimm mörk í lokaumferð þýsku deildarinnar 1983 og varð þá fyrsti erlendi leikmaðueinn til að skora fimmu í þýsku deildinni. Atli endaði það tímabil sem næstmarkahæsti leikmaður deildarinnar með 21 mark. Atli skoraði alls 38 mörk í 122 leikjum fyrir Fortuna Düsseldorf. View this post on Instagram A post shared by Fortuna Düsseldorf (@f95)
Þýski boltinn Mest lesið Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Fótbolti Náði að plata Óskar Örn Sport „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Fótbolti Íslenski hópurinn sem fer á Ólympíuleika ungmenna Sport Karólína og Cecilía byrjuðu báðar í tapi Fótbolti Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Enski boltinn Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Enski boltinn Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Enski boltinn Tómas Bent fékk rautt en Hearts fór áfram eftir vítakeppni Fótbolti Arna, Fanney og Vålerenga með öruggan sigur Fótbolti Fleiri fréttir Nicolas Jackson á leið til Aston Villa „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum „Við vorum allar alveg með þetta í dag“ Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Tómas Bent fékk rautt en Hearts fór áfram eftir vítakeppni Orri Steinn kom inn á en Mbappé skoraði þrennu Karólína og Cecilía byrjuðu báðar í tapi Arna, Fanney og Vålerenga með öruggan sigur Sjáðu tvö fyrstu Evrópumörk kvennaliðs FH í sögunni Uppgjörið: Apollon - FH 0-2 | Flottur sigur í sögulegum leik hjá Fimleikafélaginu Uppgjörið: Breiðablik - Csíkszereda 8-1 | Meiriháttar slátrun í Kópavoginum Dagný orðin sendiherra West Ham „Eigum að gera mikið betur í þessu og vitum það manna best“ UEFA hætt við sniðgöngu og evrópskar stelpur mega spila Raheem Sterling ákærður Liðsfélagi Alberts kominn í stríð við félagið Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Dönsk landsliðsstjarna dæmd Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Pirraður Ronaldo tekinn af velli og liðinu gekk betur einum manni færri Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Dramatík í undankeppni Meistaradeildarinnar Afturelding í vænlegri stöðu á toppnum Forest fyrsta úrvalsdeildarliðið úr leik í deildarbikarnum Sjá meira