Ekki liggur fyrir hvað veldur því að notendur geta margir hverjir ekki notað miðlana, sem sýna villumeldingu þegar reynt er að opna þá.
Uppfært klukkan 23:20: Í færslu á X-síðu Meta segir að verið sé að leggja lokahönd á viðgerð vegna bilunarinnar. „Við erum komin 99 prósent áleiðis,“ segir í færslunni. Beðist sé velvirðingar á þeim óþægindum sem bilunin olli. Ekki liggur fyrir hvað olli því að miðlar Meta virkuðu ekki sem skyldi í kvöld.
Á vefsíðunni Downdetector, sem heldur utan um tilkynningar um bilanir á samfélagsmiðlum, má sjá að slíkum tilkynningum hefur fjölgað mjög vegna miðla Meta síðdegis og fram eftir kvöldi. Tilkynningar um mögulegar bilanir hafa borist frá Asíu, Evrópu, Norður- og Suður Ameríku og Eyjaálfu.
Fjallað er um bilunina á vef Forbes, en þar kemur fram að meira en hundrað þúsund tilkynningar um bilanir á Facebook hafi borist síðustu tvo klukkutíma. Þá hafi svipaðar tilkynningar borist um Instagram, Whatsapp og Threads. Miðlarnir eru allir í eigu Meta.
„Við erum meðvituð um að tæknilegir örðugleikar komi í veg fyrir að notendur komist inn á forritin okkar. Við vinnum hörðum höndum að viðgerð og biðjumst velvirðingar á óþægindum sem þetta kann að valda,“ segir í tilkynningu sem birtist á aðgangi Meta á X.

Fréttin hefur verið uppfærð.