Saydnaya hefur um árabil gengið undir nafninu „Sláturhúsið“ en þar er talið að Assad-liðar hafi látið tugi þúsunda manna „hverfa“. Aðgerðasinnar og andstæðingar Assad-fjölskyldunnar hafa verið fluttir þangað, og til annarra alræmdra fangelsa í Sýrlandi, í massavís í gegnum árin þar sem þeir hafa verið pyntaðir og myrtir í dýflissum, sem grafnar voru djúpt í jörðu.
Mannréttindasamtökin Amnesty International telja að allt að þrettán þúsund manns hafi verið hengdir í Saydnaya frá árunum 2011 til 2015.
Fréttakona CNN ræddi við Maysoon Labut sem fór til Saydnaya á mánudaginn í leit að þremur bræðrum sínum og tengdasyni. Orðrómur var þá á kreiki um að enn væri ekki búið að opna dýpstu kima fangelsisins og þar mætti finna fjölda fólks sem hefði verið handtekið af Assad-liðum í gegnum árin.
Ekkert slíkt svæði hefur fundist og hefur öllum föngum verið sleppt. Einn aðgerðasinni sagði í samtali við CNN að áætlað væri að um þrjú þúsund manns hafi verið sleppt úr fangelsinu.
Margra er þó enn saknað og leitar fólk í von og óvon að upplýsingum um þá í gagnasöfnum fangelsisins. Fólk hefur einnig lesið veggjakrot í klefum fangelsisins í leit að nöfnum fjölskyldumeðlima.
CNN's @clarissaward reports from inside Syria's Saydnaya prison, dubbed the 'human slaughterhouse' by Amnesty International, as family members desperately search for records of loved ones.
— Lauren Cone (@LConeCNN) December 10, 2024
Watch her full report here https://t.co/KfwOqDmaso pic.twitter.com/TXYgjxdDUS
Tugir þúsunda hafa horfið
Ríkisstjórn Assads stundaði það lengi að láta fólk hverfa en slíkum tilfellum fjölgaði mjög um 2011, þegar andóf gegn ríkisstjórninni jókst. Pyntingar voru tíðar og eins og áður hefur komið fram hefur mikið af þessu fólki horfið alfarið.
Wall Street Journal hefur eftir mannréttindasamtökunum Syrian Network for Human Rights að frá 2011 sé talið að rúmlega 96 þúsund manns hafi horfið í fangelsakerfi Sýrlands. Þar af margir í Saydnaya.

Þá hefur mörgum verið sleppt úr fangelsum á undanförnum dögum og hafa nokkrir þeirra verið áratugi í fangelsi. Í minnst einu tilfelli hafði maður setið í fangelsi í 43 ár en hann var handtekinn þegar Hafez al-Assad, faðir Bashar, var við völd.
BBC segir frá tveimur mönnum sem fundust í Saydnaya sem gátu ekki svarað spurningum fólks um hvað þeir hétu né hversu lengi þeir hefðu verið í haldi.
Hér að neðan má sjá sjónvarpsfrétt Al Jazeera frá því gærkvöldi um leit fólks að fjölskyldumeðlimum í Saydnaya og öðrum fangelsum.
🚨🚨🚨🚨
— Omar Abu Layla (@OALD24) December 9, 2024
One of the Syrian detainees released in recent days spent 40 years in prison. He has lost his memory and suffers from mental issues due to the extreme and horrific torture he endured.
Share this tweet and let the world know why we have not backed down an inch in… pic.twitter.com/VCyRFj3z3o