Fótbolti

Hareide: „Verður að spyrja KSÍ“

Sindri Sverrisson skrifar
Åge Hareide hafði enga ástæðu til að gleðjast eftir því sem leið á leikinn í Cardiff í kvöld.
Åge Hareide hafði enga ástæðu til að gleðjast eftir því sem leið á leikinn í Cardiff í kvöld. Getty/Nick Potts

Åge Hareide kveðst ekki geta svarað því hvort að leikurinn við Wales í kvöld hafi verið hans síðasti sem landsliðsþjálfari Íslands í fótbolta.

Mikið hefur verið rætt og ritað um framtíð Hareide enda ljóst að riftunarákvæði er í samningi hans við KSÍ sem opnast fyrir nú þegar riðlakeppni Þjóðadeildarinnar er lokið. Niðurstaðan í keppninni er sú að Ísland endar í 3. sæti síns riðils og fer í umspil í mars um að halda sæti sínu í B-deildinni.

En var þetta síðasti leikur Hareide með Íslandi?

„Ég veit það ekki. Samningurinn rennur út 30. nóvember og þá þarf að ræða þetta, ekki í kvöld,“ sagði Hareide við Aron Guðmundsson í viðtali sem sjá má hér að neðan.

„Ég hef kunnað vel við að vinna með þessum strákum. Þegar allir eru klárir í slaginn þá er það frábært. En þetta er ekki mín ákvörðun. Það verður að spyrja KSÍ,“ sagði Hareide.

Ísland komst í 1-0 í Cardiff í kvöld en það dugði skammt og Wales komst í 2-1 á síðustu sekúndum fyrri hálfleiks. Niðurstaðan var svo 4-1 tap.

„Við töpuðum leiknum og leikmönnum í leiknum og fyrir leikinn. Þetta hefur verið mjög erfið vika hjá okkur. Vantaði leikmenn og misstum leikmenn. Við verðum svolítið „sjeikí“ þegar svona gerist og svo gerðum við kjánaleg mistök. Þetta var slæmur dagur.

Svona er fótbolti. Þetta leit vel út í byrjun, þegar við skoruðum. Við reyndum í seinni hálfleik að ýta á þá og sköpuðum færi, og á svona stigi verður að nýta færin til að halda sér í leiknum. En eftir svona margar breytingar sem við neyddumst til að gera þá var þetta erfitt. Wales fékk of mikið pláss og of mörg auðveld færi og þá er okkur refsað,“ sagði Hareide.

Meiðsli Orra áfall sem bættist við fleiri forföll

Forföllin sem hann nefnir eru að sjálfsögðu Albert Guðmundsson og Hákon Arnar Haraldsson, sem báðir eru meiddir, og þá fór Orri Óskarsson meiddur af velli í fyrri hálfleik í kvöld rétt eins og Aron Einar Gunnarsson á laugardaginn. Meiðsli Orra í kvöld voru mikið kjaftshögg en Alfons Sampsted og Jóhann Berg Guðmundsson meiddust einnig:

„Þetta hafði mikil áhrif. Orri er kannski hættulegasti leikmaður okkar og var góður gegn Svartfjallalandi. Fleiri meiddust og við misstum líka marga leikmenn áður en þessi törn hófst. Við verðum að hafa alla með til að gera hlutina eins og við viljum. En við reyndum okkar besta, leikmenn lögðu hart að sér og þetta hefði verið mun auðveldara ef staðan hefði enn verið jöfn í hálfleik. Við megum ekki gefa þeim svona tækifæri,“ sagði Hareide.

Hann tók jafnframt undir að íslenska liðið yrði hreinlega að nýta færin sín betur en það gerði:

„Þannig hefur þetta verið lengi. Við virðumst einnig gera mistök í öllum leikjum og þurfum að vera harðari af okkur í varnarleiknum, og forðast svona mistök,“ sagði Hareide en nánar er rætt við hann í viðtalinu hér að ofan.


Tengdar fréttir

Einkunnir Íslands: Vafasöm varnarlína

Landsliðsmenn Íslands áttu misgott kvöld í kaflaskiptum leik við Wales í kvöld en tapaðist full stórt. 4-1 sigur Wales niðurstaðan í leik þar sem Ísland hefði hæglega getað skorað fleiri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×