Ali Gayward, svæðisstjóri easyJet í Bretlandi, tilkynnti þetta á ráðstefnunni Flug til framtíðar í Hofi í dag. Gayward gat ekki verið viðstödd fundinn en sendi myndbandsupptöku þar sem hún fór yfir það hvernig tekist hefði til með flug easyJet til Akureyrar.
„Við erum mjög ánægð með að tilkynna um þessa viðbót við okkar framboð og fleiri valmöguleikum viðskiptavina okkar. Við viljum með þessu mæta vaxandi eftirspurn eftir ferðum til Norðurlands, sem við höfum sérstaklega tekið eftir á milli ára með flugin frá London Gatwick. Með viðbótinni frá Manchester getum við náð til mun fleiri viðskiptavina á Norður-Englandi.
Áfram verður fylgst vel með eftirspurn frá Manchester og við höfum mikla trú á þeirri leið, miðað við viðbrögðin hingað til. Eftirspurnin eftir vetrarferðum frá Bretlandi er mun meiri en á öðrum árstímum og þess vegna bjóðum upp á flug á þessu tímabili,“ sagði Ali Gayward í ávarpinu.
„Það er mikið fagnaðarefni að fá inn flug þessa tvo haust og vormánuði, þar sem þetta opnar á flug í vetrarfríium bæði Breta og Íslendinga. Í apríl hefur verið rólegra hjá norðlenskri ferðaþjónustu og því lengir þetta enn tímabilið þar sem við getum boðið upp á fulla þjónustu og jafnað árstíðarsveifluna,“ segir Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands í tilkynningu.