Írska fótboltalandsliðið vann sinn fyrsta heimasigur undir stjórn Heimis Hallgrímssonar í kvöld.
Írar unnu þá 1-0 sigur á Finnum í Þjóðadeildinni en leikurinn fór fram í Dublin.
Heimir hafði aðeins unnið einn sigur sem þjálfari írska liðsins og það var á útivelli á móti Finnum.
Fyrstu tveir heimaleikirnir undir stjórn Heimis höfðu aftur á móti tapast, á móti Englandi og Grikklandi.
Nú kom hins vegar fyrsti sigurinn og það var Evan Ferguson sem skoraði sigurmarkið á 45. mínútu.
Írarnir höfðu reyndar skorað fyrr í leiknum en mark Sammie Szmodics var dæmt af vegna rangstöðu.
Ferguson var hetjan en breyttist næstum því í skúrk þegar hann fékk dæmt á sig víti í seinni hálfleiknum.
Dómarinn fór í skjáinn og dæmdi hendi á Ferguson.
Joel Pohjanpalo tók vítið en Caoimhin Kelleher varði vítið.
Írar eru í þriðja sæti í riðlinum á eftir Englandi og Grikklandi en liðið er með tvo sigra og þrjú töp í fyrstu fimm leikjunum.