Skoðun

Frið­helgar fótboltabullur

Hjálmtýr Heiðdal skrifar

Viðbrögð vestrænna leiðtoga og fjölmiðla í eigu milljarðamæringa vegna ofbeldis glæpalýðsins sem fylgdi ísraelska knattspyrnuliðinu Maccabi Tel Aviv til Amsterdam sýnir okkur stöðuna í hnotskurn.

Ursula von der Leyen forseti framkvæmdastjórnar ESB, Dick Schoof forsætisráðherra Hollands, Olaf Scholz þýski forsætisráðherrann, Macron Frakklandsforseti og Biden forseti Bandaríkjanna - allir syngja nú einum rómi um „pogroms“, þ.e. gyðingaofsóknir, gyðingahatur sem „endurómuðu dökkar stundir í sögunni þegar gyðingar voru ofsóttir.“

En hvað gerðist í rauninni?

Til Amsterdam komu um 2000 fylgjendur ísraelska knattspyrnuliðsins. Þessi stuðningshópur er þekktur fyrir kynþáttahatur og ofbeldi. Þeir hafa margsinnis átt í útistöðum við lögregluna í Ísrael vegna árása á araba og einnig andstæðinga Netanyahus forsætisráðherra Ísraels. Hópurinn samanstendur að mestu af hermönnum, bæði núverandi og fyrrverandi. Menn sem eru aldir upp í hatri á Palestínumönnum og þjálfaðir til að drepa.

Hópurinn hóf dvöl sína í Amsterdam með því að rífa niður palestínska fána, eyðileggja leigubíla í eigu Palestínumanna og berja fólk með lurkum. Fjöldi myndbanda sýna þessar aðfarir skrílsins. Síðan gengu þeir um borgina öskrandi sín þekktu slagorð: „Drepum arabana!“, „Á Gaza eru engir skólar því við erum búnir að drepa öll börnin!“ ofl. í þessum dúr.

Jazie Veldhuyzen, borgarfulltrúi í Amsterdam, staðfestir að „ísraelskir ofbeldisseggir áttu upptökin.“ Hann bætti við að „Þetta er þjálfað fólk og hugsanlegir stríðsglæpamenn. Munið að þeir réðust á almenna borgara í Aþenu í mars.“

Það eru viðbrögð Amsterdambúa gegn þessu ofbeldi sem eru sagðar vera gyðingaofsóknir byggðar á gyðingahatri í frásögn fjölmiðla og ýmissa stjórnvalda.

Mönnum er svo brátt í brók að þeir misbeita sínum eigin skilgreiningum á gyðingahatri. Fjörtíu og þrjú ríki, þ.á.m. Þýskaland, Frakkland, Bretland, Holland og Bandaríkin, hafa tekið upp s.k. IHRA skilgreiningu á gyðingahatri. Þar segir að það sé „gyðingahatur að gera gyðinga sameiginlega ábyrga fyrir gjörðum Ísraelsríkis.“ Þannig er það gyðingahatur skv. IHRA að segja það vera ofsóknir gegn gyðingum þegar menn bregðast við ofbeldi glæpalýðsins frá Ísrael.

Francesca Albanese, sérlegur skýrslugjafi Sameinuðu þjóðanna um réttindi Palestínumanna, sakaði fjölmiðla vestanhafs um að dreifa röngum frásögnum sem hún sagði að hefðu gert lítið úr eða hundsað ögrun stuðningsmanna ísraelska knattspyrnuliðsins.

Skýrar línur

Línurnar verða æ skýrari. Stjórnvöld Bretlands, Bandaríkjanna, Þýskalands, Frakklands ofl. ríkja styðja þjóðarmorð og landþjófnað Ísraelsmanna. Þau styðja barnamorðin – og þegar almenningur í Evrópu snýst til varnar gegn ísraelskum glæpalýð, rasískum síonistum, sem vaða um vestræna borg með ofbeldi og skemmdarverkum hrópandi rasísk slagorð, þá kemur þessi viðbjóðslegi kór vestrænna stjórnmálamanna og ætlar að nota tækifærið til að herða enn atlögurnar að þeim sem styðja málstað Palestínumanna.

Það er ekki bara ísraelski herinn sem nýtur friðhelgi við manndrápin, ísraelskur síonistaskríll sem ræðst inn í evrópska borg skal einnig njóta friðhelgi.

Sínoniskir glæpamenn eru hin eilífu fórnarlömb.

Blóðbaðið á Gaza og Vesturbakkanum, blóðbað er ekki mögulegt nema með stuðningi Macrons, Scholz, Stramers, Bidens ofl., sýnir okkur hvar þetta fólk stendur. Það styður fjöldamorð – með vopnum, fjármunum og pólitískum stuðningi.

Höfundur er formaður Félagsins Ísland - Palestína og og höfundur bókarinnar Íslandsstræti í Jerúsalem.




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×