Lífið

Tæki Brynjar Níels með í bú­staðinn

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Líklega hafa fáir mætt með eins mikið hugrekki í þáttinn og Sanna Magdalena.
Líklega hafa fáir mætt með eins mikið hugrekki í þáttinn og Sanna Magdalena. Vísir/Vilhelm

Sanna Magdalena Mörtudóttir leiðtogi Sósíalistaflokksins segist spennt að kynnast nokkrum þingmönnum fari svo að hún komist á þing. Hún segir að líklega væri best að bjóða einum þingmanni úr öllum flokkum í sumarbústaðarferð.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í fjórða þætti Af vængjum fram, þangað sem stjórnmálaleiðtogar mæta í aðdraganda kosninga og gæða sér á vængjum með sterkri sósu. Sanna Magdalena er hvergi bangin þegar kemur að sterkum mat líkt og kemur berlega í ljós í þættinum.

Sanna espast upp þegar hún er spurð út í eignaskatt, svarar hraðaspurningum, hvort meðlimir í Sósíalistaflokknum séu skikkaðir til þess að lesa Kommúnistaávarpið og hver er hennar helsta skemmtun, svo fátt eitt sé nefnt.

Klippa: Af vængjum fram - Sanna Magdalena Mörtudóttir

Tengdar fréttir

Versti óttinn að raungerast

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir þingflokksformaður Pírata segist hafa mjög takmarkað þol fyrir sterkum mat. Hún segist hinsvegar elska að stíga stundum út fyrir þægindarammann og skellir sér líka í störukeppni á meðan hún smakkar sterkustu sósuna.

„Ég sparka bara í þig á eftir“

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar er ekki til í að fallast á að alþingismenn séu drykkfelldari en aðrar starfsstéttir. Hún segir þvert á það sem margir haldi sé mikil gleði á þingi og segist hún sjá ákveðna fegurð í því þegar þingmenn fá sér í glas saman.

Ríða, drepa, giftast setti Ingu í ómögulega stöðu

Inga Sæland formaður Flokks fólksins mætir með eigin hanska og bakflæðistöflur til þess að takast á við sterkar sósur. Hún segir bragðið minna sig mest á lagið Hot Stuff með Donnu Summer og gefur lítið fyrir hraðaspurningarnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×