Andri Fannar lagði upp í Istanbúl Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 23. október 2024 16:37 Mauro Icardi fagnar eftir að hafa komið Galatasaray yfir gegn Elfsborg. getty/Abdulhamid Hosbas Galatasaray komst á topp Evrópudeildarinnar í fótbolta með sigri á Elfsborg, 4-3, í Tyrklandi í dag.
Andri Fannar Baldursson lék síðustu þrettán mínúturnar í liði Elfsborg sem var í afar slæmri stöðu í hálfleik, enda 3-0 undir. Mauro Icardi og Baris Alper Yilmaz skoruðu fyrir Galatasaray auk þess sem markvörður Elfsborg, Isak Pettersson, gerði sjálfsmark. Leikmenn Elfsborg tóku sig saman í andlitinu í seinni hálfleik og gerðu leikinn spennandi. Niklas Hult skoraði á 53. mínútu og tólf mínútum síðar minnkaði Michael Baidoo muninn í 3-2 með marki úr vítaspyrnu. Yunus Akgun kom heimamönnum aftur tveimur mörkum yfir, 4-2, á 83. mínútu en Jordan Larsson minnkaði muninn í 4-3 í uppbótartíma eftir sendingu frá Andra Fannari. Nær komust gestirnir frá Svíþjóð hins vegar ekki og þeir urðu að sætta sig við 4-3 tap. Andri Fannar og félagar eru í 16. sæti Evrópudeildarinnar með þrjú stig eftir þrjá leiki. Eggert Aron Guðmundsson sat allan tímann á varamannabekk Elfsborg en hann hefur fengið fá tækifæri með liðinu á tímabilinu.
Evrópudeild UEFA Mest lesið Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Fótbolti Íslenski hópurinn sem fer á Ólympíuleika ungmenna Sport Náði að plata Óskar Örn Sport Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Enski boltinn Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Handbolti „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Fótbolti Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Enski boltinn Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Enski boltinn Karólína og Cecilía byrjuðu báðar í tapi Fótbolti „Við vorum allar alveg með þetta í dag“ Fótbolti Fleiri fréttir Nicolas Jackson á leið til Aston Villa „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum „Við vorum allar alveg með þetta í dag“ Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Tómas Bent fékk rautt en Hearts fór áfram eftir vítakeppni Orri Steinn kom inn á en Mbappé skoraði þrennu Karólína og Cecilía byrjuðu báðar í tapi Arna, Fanney og Vålerenga með öruggan sigur Sjáðu tvö fyrstu Evrópumörk kvennaliðs FH í sögunni Uppgjörið: Apollon - FH 0-2 | Flottur sigur í sögulegum leik hjá Fimleikafélaginu Uppgjörið: Breiðablik - Csíkszereda 8-1 | Meiriháttar slátrun í Kópavoginum Dagný orðin sendiherra West Ham „Eigum að gera mikið betur í þessu og vitum það manna best“ UEFA hætt við sniðgöngu og evrópskar stelpur mega spila Raheem Sterling ákærður Liðsfélagi Alberts kominn í stríð við félagið Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Dönsk landsliðsstjarna dæmd Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Pirraður Ronaldo tekinn af velli og liðinu gekk betur einum manni færri Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Dramatík í undankeppni Meistaradeildarinnar Afturelding í vænlegri stöðu á toppnum Forest fyrsta úrvalsdeildarliðið úr leik í deildarbikarnum Sjá meira