Viðskipti erlent

Kærasta raf­mynta­mógúls í fangelsi vegna FTX-svikanna

Kjartan Kjartansson skrifar
Caroline Ellison fyrir utan dómshús á Manhattan þar sem hún bar vitni gegn Sam Bankman-Fried í október í fyrra.
Caroline Ellison fyrir utan dómshús á Manhattan þar sem hún bar vitni gegn Sam Bankman-Fried í október í fyrra. AP/Eduardo Munoz Alvarez

Dómstóll í New York dæmdi Caroline Ellison, stjórnanda hjá rafmyntafyrirtækinu FTX, í tveggja ára fangelsi fyrir sinn þátt í stórfelldum fjársvikum. Hún hlaut vægari dóm fyrir að segja til Sams Bankman-Fried, stofnanda FTX og fyrrverandi kærasta hennar.

Bankman-Fried hlaut 25 ára fangelsisdóm fyrir að svindla á fjárfestum og innistæðueigendum FTX fyrr á þessu ári. Sakfelling hans byggðist meðal annars á vitnisburði Ellison en þau Bankman-Fried höfðu meðal annars átt í ástarsambandi á tímabili.

Ellison var forstjóri rafmyntavogunarsjóðsins Alameda Research. Bankman-Fried færði milljarða dollara ólöglega út úr FTX á laun til þess að bjarga því félagi þegar það skuldaði milljarða dollara vegna misheppnaðra fjárfestinga. Þegar fregnir af óráðsíu hjá FTX byrjuðu að berast út gerðu viðskiptavinir áhlaup á fyrirtækið. Það var á endanum tekið til gjaldþrotameðferðar í nóvember 2022.

„Ég skammast mín ákaflega fyrir það sem ég hef gert,“ sagði Ellison tárvot þegar hún bað alla þá sem urðu fyrir tjóni af völdum svikanna fyrir dómi.

Dómarinn í máli Ellison féllst á tillögu saksóknara um að Ellison ætti skilið vægari refsingu vegna þess hversu einstaklega samvinnufús hún hefði verið við rannsókn málsins. Hún hefði játað sekt sína og borið vitni gegn Bankman-Fried. 

Saksóknari sagði að sér hefði þótt sérstaklega mikið til þess koma að Ellison hefði ekki reynt að komast undan réttvísinni heldur varið tveimur árum í að liðsinna rannsakendum málsins.

Þrátt fyrir það taldi dómarinn nauðsynlegt að dæma Ellison til fangelsisvistar í ljósi þátttöku hennar í einu umfangsmesta fjársvikamáli í sögu Bandaríkjanna. Hún þarf að gefa sig fram til afpláningar 7. nóvember. 


Tengdar fréttir

Notaði stolið fé til að gefa milljarða fyrir þing­kosningarnar

Bandarískir saksóknarar segja að Sam Bankman-Fried, stofnandi fallna rafmyntafyrirtækisins FTX, hafi notað meira en þrettán milljarða króna sem hann stal af viðskiptavinum fyrirtækisins til þess að styrkja stjórnmálaflokka fyrir þingkosningar í fyrra. Hann hafi skipað undirmönnum sínum að fela slóð peninganna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×