Viðskipti innlent

Enn eitt fé­lag Quangs gjald­þrota

Árni Sæberg skrifar
Quang Lé var einn umsvifamesti veitingamaður landsins auk þess að reka gistiheimili í miðbæ Reykjavíkur. Hann er grunaður um mansal og skipulagða glæpastarfsemi.
Quang Lé var einn umsvifamesti veitingamaður landsins auk þess að reka gistiheimili í miðbæ Reykjavíkur. Hann er grunaður um mansal og skipulagða glæpastarfsemi. vísir

Vietnam restaurant ehf. varð á dögunum sjötta félagið í eigu athafnamannsins Quangs Lé, sem úrskurðað hefur verið gjaldþrota.

Í auglýsingu um innköllun í Lögbirtingablaðinu í gær segir að félagið hafi verið úrskurðað gjaldþrota þann 12. september síðastliðinn.

Áttu kröfu í búið?

Í auglýsingunni er skorað á alla þá, sem telja til skulda eða annarra réttinda á hendur búinu eða eigna í umráðum þess, að lýsa kröfum sínum fyrir Arnari Þór Stefánssyni, skiptastjóra í búinu, innan tveggja mánaða frá fyrri birtingu innköllunarinnar.

Frestdagur búsins er 6. júní þessa árs og skiptafundur verður haldinn þann 16. desember næstkomandi.

Átta félög en aðeins tvö standa enn

Quang Lé var, eins og ítarlega hefur verið fjallað um, stórtækur veitinga- og athafnamaður áður en lögregla réðst í umfangsmiklar aðgerðir í fyrirtækjum hans og handtók hann. Hann er grunaður um hin ýmsu brot, þar á meðal mansal.

Félögin sem Quang á eða átti eru átta talsins og eru ýmist fasteignafélög, félög utan um rekstur veitingastaða og annað. Þetta eru Vy-þrif, Vietnam Restaurant, Vietnam Market, NQ Fasteignir, EA17 ehf., Vietnamese Cuisine, Wokon ehf. og Wokon Mathöll ehf. en síðustu tvö félögin á hann í gegnum NQ Fasteignir.

Aðeins Vietnam Market og NQ Fasteignir hafa ekki verið úrskurðuð gjaldþrota.


Tengdar fréttir

Wok On gjaldþrota

WOKON ehf., sem hélt utan um veitingastaðakeðjuna Wok On, hefur verið úrskurðað gjaldþrota. Félagið er að fullu í eigu veitingamannsins Quang Lé, sem grunaður er um mansal og fleiri refsiverð brot. Annað félag í hans eigu, EA17 ehf., hefur sömuleiðis verið tekið til gjaldþrotaskipta.

Wok on-veldið falt

WOKON ehf., sem hélt utan um veitingastaðakeðjuna Wok On, er til sölu. Félagið er í eigu veitingamannsins Quang Le og var úrskurðað gjaldþrota á dögunum. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×