Erlent

Fólk flýr Beirút undan mann­skæðum á­rásum Ísraela

Kjartan Kjartansson og Gunnar Reynir Valþórsson skrifa
Reykur stígur upp frá þorpi í Nabatiyeh-héraði í sunnanverðu Líbanon eftri loftárás Ísraela í morgun. 
Reykur stígur upp frá þorpi í Nabatiyeh-héraði í sunnanverðu Líbanon eftri loftárás Ísraela í morgun.  AP/Hussein Malla

Hundrað eru sagðir fallnir og hundruð særðir í hörðum árásum Ísraelshers á Líbanon. Ísraelsher hefur sagt íbúum í Suður-Líbanon að forða sér búi þeir nærri athafnasvæðum Hezbollah-samtakanna. Fólksflótti er skollinn á frá höfuðborginni Beirút.

Ísraelar segja að aukinn kraftur hafi verið settur í árásir á Hezbollah til að fyrirbyggja yfirvofandi árás á Ísrael. Skotið var á þrjú hundruð skotmörk í Líbanon í dag. Nokkrir helstu leiðtogar Hezbollah voru á meðal um fjörutíu og fimm manns sem féllu í árásum Ísraela á nágrannaríkið á föstudag. Flugskeyti flugu á milli Ísraels og Líbanon um helgina.

Heilbrigðisráðuneyti Líbanons segir að minnsta kosti hundrað látna í árásum Ísraela sem hófust í nótt. Fleiri en fjögur hundruð séu sárir til viðbótar. Sjúkrahúsum í sunnanverðu landinu var sagt að fresta öllum valkvæðum aðgerðum og búa sig undir að taka á móti særðu fólki í morgun. Skólum hefur verið lokað þar.

Séu tölur ráðuneytisins réttar er þetta mesta mannfall á einum degi frá því að átök hófust á milli Hezbollah og Ísraelshers í kjölfar árásar Hamas á Ísrael í október í fyrra, að sögn AP-fréttastofunnar. Um 600 manns hafa fallið í Líbanon í þeim átökum, þar á meðal um hundrað óbreyttir borgarar.

Hezbollah samtökin segjast hafa svarað árásum Ísraela með eldflaugaskothríð á norðurhluta Ísraels þar sem skotmörkin hafi verið herstöðvar og vöruhús á vegum hersins. Einn er sagður hafa slasast lítillega í þeim árásum en margar flauganna voru skotnar niður af loftvarnarkerfi Ísraela.

Fréttaritari breska ríkisútvarpsins BBC segir að þung umferð sé nú í Beirút þar sem borgarbúar reyni að komast undan eftir að Ísraelar sendu út skilaboð um að íbúar tiltekinna hverfa ættu að hafa sig á brott. Líbönum hefur verið sagt að halda sig fjarri athafnasvæðum Hezbollah. BBC segir að Hamra-hverfið í Beirút, þar sem íbúar hafa fengið viðvaranir um rýmingu, sé ekki þekkt sem vígi Hezbollah.

Átökin á milli Ísraela og Hezbollah stigmögnuðust á þriðjudag þegar umdeildar sprengjuárásir sem beindust að liðsmönnum samtakanna voru gerðar. Fjarstýrðar sprengjur í símaboðum og talstöðvum Hezbollah-liða sprungu þá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×