Rigning, slydda og jafnvel snjókoma norðaustanlands Lovísa Arnardóttir skrifar 15. september 2024 08:39 Það verður líklega ekki þessi blíða á Raufarhöfn í dag. Þar gæti jafnvel snjóað. Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm Í dag verður norðan og norðvestan 5 til 10 metrar á sekúndu en 10 til 15 á austanverðu landinu framan yfir hádegi. Þá verður skýjað og rigning eða slydda norðaustanlands, jafnvel snjókoma inn til landsins, en styttir upp síðdegis. Yfirleitt bjart í öðrum landshlutum. Í kvöld á svo að lægja. Hiti verður líklega í dag á bilinu 3 til 12 stig og verður hlýjast sunnanlands.
Í hugleiðingum veðurfræðings kemur fram að á morgun verði svo vaxandi austanátt og þá fari að rigna, fyrst sunnanlands. Samhliða því verður austan og suðaustan 10 til 18 metrar á sekúndu með rigningu í flestum landshlutum seinnipartinn, en úrkomuminna norðaustanlands. Hiti verður á bilinu 6 til 12 stig. Á þriðjudag snýst svo í suðvestan 5 til 13 metra á sekúndu með dálítilli vætu en þurrt að kalla austantil. Vaxandi austanátt með rigningu um mest allt land um kvöldið. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast fyrir austan. Nánar á vef Veðurstofunnar. Á vef Vegagerðarinnar kemur fram að vetrarfærð sé á vegum á Norðausturlandi og Austurlandi og þeir því ekki færir bílum sem ekki eru vetrarbúnir. Þá eru margir vegir á hálendi ófærir eða ekki vitað um ástand þeirra. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á mánudag: Gengur í austan og suðaustan 13-20 m/s, hvassast syðst. Víða rigning en úrkomuminna norðaustanlands. Hiti 7 til 12 stig. Á þriðjudag: Suðaustlæg átt, víða 8-15 m/s og dálítil rigning í flestum landshlutum, en norðaustlægari norðvestantil. Hvessir heldur og bætir í rigningu um kvöldið. Hiti 8 til 14 stig, hlýjast austantil. Á miðvikudag: Suðaustlæg átt og rigning eða skúrir, en úrkomulítið á Norðausturlandi. Hlýtt í veðri. Á fimmtudag: Breytileg átt og skýjað en lengst af þurrt. Hiti 3 til 8 stig. Á föstudag: Austlæg átt og dálítil væta, en þurrt að kalla fyrir norðan og austan. Hiti breytist lítið. Á laugardag: Útlit fyrir breytilega átt. Skýjað og víða úrkomulítið, en rigning á norðvestanverðu landinu. Hiti 5 til 10 stig.
Færð á vegum Veður Mest lesið Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Innlent Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Innlent Fleiri fréttir Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Sjá meira