Naumt tap Magdeburg í Ofurbikarnum Smári Jökull Jónsson skrifar 31. ágúst 2024 18:47 Ómar Ingi í leik með Magdeburg á síðustu leiktíð. Vísir/Getty Ómar Ingi Magnússon var markahæstur í liði Magdeburg sem mátti sætta sig við tap gegn Fusche Berlin í Ofurbikarnum í þýska handboltanum í dag.
Í Ofurbikarnum svokallaða í þýska handboltanum mætast deildar- og bikarmeistararnir frá síðustu leiktíð. Þar sem Magdeburg varð þá tvöfaldur meistari mættu þeir í dag liði Fusche Berlin sem varð í 2. sæti deildakeppninnar. Leikurinn í dag var jafn og spennandi og voru þeir Ómar Ingi Magnússon og Gísli Þorgeir Kristjánsson á sínum stað í liði Magdeburg. Lið Fusche byrjaði aðeins betur og komst tveimur mörkum yfir í stöðunni 6-4 en meistarar Magdeburg skoruðu þá fimm af næstu sex mörkum og komust í 9-7. Liðin héldu áfram að skiptast á forystunni og í hálfleik var staðan 17-17, allt hnífjafnt. Sama var uppi á teningunum í síðari hálfleik. Þegar tíu mínútur voru eftir af leiknum var staðan 26-26 og leikurinn áfram í járnum. Magdeburg komst í 28-26 og leiddi með tveimur mörkum þegar fimm mínútur voru eftir. Í stöðunni 29-27 skoraði Fusche Berlin hins vegar fjögur mörk í röð og náði tveggja marka forystu. Þann mun náði lið Magdeburg ekki að brúa og Fusche Berlin fagnaði 31-30 sigri. Ómar Ingi Magnússon var markahæstur í liði Magdeburg með níu mörk en sex þeirra komu af vítalínunni. Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði tvö mörk en Svíinn Jerry Tollbring var markahæstur hjá Berlínarrefunum með níu mörk.
Þýski handboltinn Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Sindri áfram í sextán liða úrslit Körfubolti Finnur til með Arnari Handbolti Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Enski boltinn Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira