Verðlag á matvöru lækkar í fyrsta sinn frá því í mars Lovísa Arnardóttir skrifar 20. ágúst 2024 14:28 Verðlag á matvöru hefur lækkað. Áhrifa Prís gætir ekki í nýjustu könnun en verð er lægra þar en í Bónus og Krónunni. Vísir/Vilhelm Verðlag á matvöru hefur lækkað, samkvæmt greiningu verðlagseftirlits ASÍ, í fyrsta sinn frá því að nýir kjarasamningar voru undirritaðir í mars. Þróunin var komin vel á leið fyrir opnun lágvöruverðsverslunarinnar Prís um helgina. Þetta kemur fram í nýrri tilkynningu frá verðlagseftirliti ASÍ.
Í tilkynningunni segir að frá undirritun kjarasamninga hafi verðlag á matvöru hækkað á bilinu 0,2 til 0,7 prósent á mánuði. Óvenju mikil hækkun mældist á matvöru síðasta mánuði, eða um 0,7 prósent. Í tilkynningu verðlagseftirlits ASÍ segir að hækkunina megi að mestu skýra með hækkunum í verslunum Samkaupa. Nánar hér á vef ASÍ. Þar kemur einnig fram að verðlag í Nettó, Kjörbúðinni og Krambúðinni hafi hækkað umtalsvert í júlí en lækkað svo aftur í ágúst. Verðlag í Bónus hækkaði lítillega í ágúst miðað við hvað það var í júlí en í Hagkaup stóð verðlag í stað á milli mánaða samkvæmt tilkynningunni. Sé litið yfir lengra tímabili sést að verðlag í Krónunni hefur frá undirritun kjarasamninga hækkað minna en í Bónus. Nýjustu mælingar verðlagseftirlitsins benda svo til þess að verðlag hafi lækkað um 0,2 prósent milli júlí og þess sem af er ágústmánaðar. Í Nettó, sem dæmi, hafa vörur lækkað í mörgum flokkum. Mest lækki í flokki léttmjólkur eða um 4,4 prósent. Þær vörur sem hafi hækkað hækki mismikið en gæludýrarvörur hafi hækkað mest, eða um 0,9 prósent. Þá segir í tilkynningunni að yfir sumarmánuðina hafi verðlag á matvöru hækkað mest í Bónus. Hástökkvarinn í versluninni sé Arla Havarti 300 gramma ostur sem hefur hækkað um 67 prósent í verði. Aðrar vörur sem hafa hækkað mikið eru kíví í lausu en það hefur hækkað um 30 prósent. Kíló af Hornafjarðar rauðum kartöflum hefur hækkað um 25 prósent og hálft kíló af SFG gulrótum líka. Þá hefur Hellman’s dressing, 250ml, hækkað um 24 prósent og Freyju Rís, 70gr, um 22 prósent. Þeir flokkar sem vega mest í verðlagshækkun Bónus yfir sumarið eru ávextir, kjöt, fiskur og sælgæti. Prís með lægra verð í 96 prósent tilfella Í tilkynningu verðlagseftirlits ASÍ segir að áhrifin af opnun lágvöruverðsverslunarinnar Prís séu ekki komin fram í verðsamanburði þeirra en að í fyrstu athugun þeirra á opnunardegi hafi Prís verið með lægra verð en Bónus og Krónan í um 96 prósent tilfella. Í yfir 10 prósent tilfella var munurinn meira en 10 prósent og í meira en fjórðungi tilfella yfir 5 prósent. Sama dag og verslunin opnaði voru verð á MS ostum lækkuð í Bónus, niður að verðinu sem bauðst í Prís. Í tilkynningu verðlagseftirlitsins segir um könnunina að verðlagsbreytingar séu reiknaðar með vigtun vöruflokka og verslana. „Þegar talað er um breytingu á verðlagi er um að ræða veginn útreikning, en breyting á verði merkir stakan samanburð eða óvegið meðaltal. Við verðsamanburð eru skoðuð meðalverð sérhverrar vöru yfir mánuðinn (eða 6-13. mars þegar borið er saman við undirritun kjarasamninga) og borin saman við meðalverð mánaðarins á undan. Breytingar eru svo vegnar útfrá mikilvægi vöruflokka. Fjöldi samanburða í hverjum mánuði er um eða yfir 20.000.“
Verðlag Verslun Matvöruverslun Kjaramál Kjaraviðræður 2023-24 Neytendur Tengdar fréttir Lágvöruverðsverslunin Prís opnar í dag Prís, ný lágvöruverðsverslun, opnaði í dag á Smáratorgi 3 í turninum. Prís er fyrsti nýi aðilinn til að koma inn á lágvöruverðsmarkað í 24 ár. 17. ágúst 2024 11:48 Upplifunin verði eins og að fara í búð í útlöndum Prís, ný lágvöruverðsverslun opnar dyr sínar um miðjan ágúst ef áætlanir ganga eftir. Framkvæmdastjórinn segir að upplifun viðskiptavina verði svolítið eins og að fara í búð í útlöndum. 9. ágúst 2024 13:15 Dæmi um fimmtíu prósenta hækkun á matvöru Verðlag á matvöru hefur tekið að hækka hratt, um 0,65% milli mánaða eða 9,2% á ársgrundvelli, samkvæmt nýjustu mælingum verðlagseftirlits ASÍ. Mest verðhækkun er í Kjörbúðinni og Nettó þar sem verð á grænum baunum hækkar um 30 prósent. Þá rýkur sellerí upp í verði hjá Krónunni. 26. júlí 2024 12:11 Hvetja fólk til að taka verðmerkingum í Hagkaup með fyrirvara Alþýðusamband Íslands, ASÍ, segir verðmerkingar í Hagkaup óáreiðanlegar. Í einhverjum tilfellum séu tvær ólíkar verðmerkingar á sömu vöru í sömu verslun en slík dæmi finnist aðeins örsjaldan í öðrum verslunum. Í einu tilfelli hafi munurinn numið 260 krónum. Sektir hafi ekki dugað. ASÍ hvetur neytendur til að taka verðmerkingum í hillu í Hagkaup með fyrirvara. 29. maí 2024 13:33 Mest lesið Skuldar félagi Einars 44 milljónir og gæti misst 295 milljóna hús Viðskipti innlent Fegurð er glæpur kom út í mínus Viðskipti innlent „Alls konar fólk heyrt í mér um alls konar hluti“ Viðskipti innlent Atvinnumissir: „Ég kunni nú ekki við að spyrja Jón beint“ Atvinnulíf Segir engar breytingar hafa verið gerðar á uppskrift SS pylsna Neytendur Þrjár verslanir í Múlunum sektaðar eftir rassíu Neytendastofu Neytendur Nýtt trend: Engir yfirmenn á vinnustaðnum Atvinnulíf Tupperware lýsir yfir gjaldþroti Viðskipti erlent Þetta kostar skyndibiti á Íslandi Neytendur Útlit fyrir frekari verðhækkanir á kaffimarkaði Neytendur Fleiri fréttir Segir engar breytingar hafa verið gerðar á uppskrift SS pylsna Útlit fyrir frekari verðhækkanir á kaffimarkaði Þrjár verslanir í Múlunum sektaðar eftir rassíu Neytendastofu Þetta kostar skyndibiti á Íslandi Fær bætur vegna brúnu blettanna í mottunni Með ólíkindum og merki um taumlausa græðgi Arion banki hækkar vexti hressilega Greiðslubyrði gæti farið hríðlækkandi á næsta ári Ellefu fyrirtæki til skoðunar vegna bílastæðagjalda Skinkan langódýrust í Prís Fasteignasali gaf rangar upplýsingar og situr uppi með reikninginn Kílómetragjaldið verst fyrir þá tekjulægri Óttast að fólk kaupi eitruð barnaföt fyrir jólin Blekking við neytendur eða leið til að halda „þægilegri verðpunkti“? Óttast að raforkuverð fjórfaldist án inngrips Réttur og öryggi leigjenda aukast á sunnudaginn Mótmæla samráðsummælum Breka og segja þau „haldlaus“ Verslanir hafi haft með sér „þögult samkomulag“ um verð Prís hrærir í pottinum: „Ekkert of langt gengið að kalla þetta verðstríð“ Verðlag á matvöru lækkar í fyrsta sinn frá því í mars Kaupum meira og meira þrátt fyrir mikla verðbólgu Reiknar með því að Bónus sjái Prís sem áskorun Lágvöruverðsverslunin Prís opnar í dag Temu kaupin getu hæglega orðið að fíkn Verðstríð að hefjast á matvörumarkaði Sleppur við sektir eftir auglýsingu um hundrað prósent lán Orðrómur um Appelsín ósannur Sjá meira
Lágvöruverðsverslunin Prís opnar í dag Prís, ný lágvöruverðsverslun, opnaði í dag á Smáratorgi 3 í turninum. Prís er fyrsti nýi aðilinn til að koma inn á lágvöruverðsmarkað í 24 ár. 17. ágúst 2024 11:48
Upplifunin verði eins og að fara í búð í útlöndum Prís, ný lágvöruverðsverslun opnar dyr sínar um miðjan ágúst ef áætlanir ganga eftir. Framkvæmdastjórinn segir að upplifun viðskiptavina verði svolítið eins og að fara í búð í útlöndum. 9. ágúst 2024 13:15
Dæmi um fimmtíu prósenta hækkun á matvöru Verðlag á matvöru hefur tekið að hækka hratt, um 0,65% milli mánaða eða 9,2% á ársgrundvelli, samkvæmt nýjustu mælingum verðlagseftirlits ASÍ. Mest verðhækkun er í Kjörbúðinni og Nettó þar sem verð á grænum baunum hækkar um 30 prósent. Þá rýkur sellerí upp í verði hjá Krónunni. 26. júlí 2024 12:11
Hvetja fólk til að taka verðmerkingum í Hagkaup með fyrirvara Alþýðusamband Íslands, ASÍ, segir verðmerkingar í Hagkaup óáreiðanlegar. Í einhverjum tilfellum séu tvær ólíkar verðmerkingar á sömu vöru í sömu verslun en slík dæmi finnist aðeins örsjaldan í öðrum verslunum. Í einu tilfelli hafi munurinn numið 260 krónum. Sektir hafi ekki dugað. ASÍ hvetur neytendur til að taka verðmerkingum í hillu í Hagkaup með fyrirvara. 29. maí 2024 13:33