Íslensk framleiðsla og traust lausn fyrir byggingarmarkaðinn Límtré Virnet 6. ágúst 2024 11:24 „Sú staðreynd að þeir sem byrja að skipta við okkur koma aftur og aftur, segir okkur að við erum að bjóða upp á afar vandaða vöru, frábæra þjónustu og samkeppnishæft verð,“ segir Sigurður Guðjónsson, forstöðumaður byggingardeildar Límtrés Vírnets. Notkun steinullareininga frá Límtré Vírneti ehf. hefur aukist mikið undanfarin ár en þær eru helst notaðar í útveggi, milliveggi og þök. Steinullareiningarnar hafa gegnum árin sannað sig sem frábæran kost þegar kemur að hagkvæmni og góðri endingu hér á landi. „
Steinullareiningarnar eru afar einfaldar í uppsetningu,“ segir Sigurður Guðjónsson, forstöðumaður byggingardeildar Límtrés Vírnets. „Þær hafa helst verið notaðar í ýmis iðnaðarhús, verslanir, gagnaver, geymsluhús, reiðhallir, landbúnaðarbyggingar, íbúðarhús og fleiri byggingar.“ Um er að ræða íslenska gæða framleiðslu að hans sögn. „Ólíkt innfluttum steinullareiningum bjóðum við upp á stuttan afhendingartíma og uppsetning á þeim er fljótleg. Ef eitthvað skemmist eða breytist við uppsetningu þarf ekki að bíða í margar vikur eftir nýjum einingum heldur björgum við málum á stuttum tíma. Sú staðreynd að þeir sem byrja að skipta við okkur koma aftur og aftur, segir okkur að við erum að bjóða upp á afar vandaða vöru, frábæra þjónustu og samkeppnishæft verð.“ Einföld, örugg og vistvæn lausn Hver steinullareining samanstendur af steinull, innra og ytra stáli sem límt er á steinullina segir Sigurður. „Þetta er mjög einföld og góð lausn fyrir bæði útveggi og þök því innra stálið gegnir líka hlutverki rakavarnarlags.“ Útveggir og þök sem eru byggð upp með þessum einingum þarf því ekki að loftræsta eins og hefðbundin þök, sem er mikill kostur. Steinullin sem notuð er í steinullareiningarnar kemur að mestu leyti frá steinullarverksmiðjunni á Sauðárkróki en hún er umhverfisvænni en steinull sem er framleidd í Evrópu. „Auk þess er stálið sem notað er í framleiðslu eininganna með GreenCoat PRO BT yfirborðshúðun sem er með því umhverfisvænasta sem er á markaðnum, ásamt því að veita góða vörn gegn tæringu. Steinullareiningarnar eru framleiddar í verksmiðju okkar á Flúðum.“ Stór kostur við steinullareiningarnar að sögn Sigurðar er að þær hafa gott brunaþol og henta því vel í brunaveggi. „Með þessum einingum er einfalt og ódýrt að skipta stærri húsum upp í minni brunahólf.“ Öflug sölu- og hönnunardeild Sölu- og hönnunardeild Límtrés Vírnets er afar öflug og aðstoðar viðskiptavini við val á réttum einingum fyrir hinar ýmsu gerðir bygginga og kemur með tillögur að hagkvæmu burðarvirki. „Deildin sér einnig um að leggja inn teikningar fyrir límtrésburðarvirki og einingar til byggingarfulltrúa. Viðskiptavinir okkar eru sérstaklega ánægðir með þessa þjónustu.“ Límtré Vírnet er rótgróið iðnfyrirtæki sem byggir starfsemi sína á margreyndum framleiðsluferlum og hefur þjónað byggingarmarkaði hérlendis með gæðavörum í rúmlega 60 ár. Fyrirtækið er sem dæmi eini framleiðandi límtrés og steinullareininga hér á landi en framleiðsla þess fer fram í verksmiðjum fyrirtækisins á Flúðum.
Hús og heimili Mest lesið Húsið sem næstum gleymdist: „Eins og kýlt í hjartað á mér“ Atvinnulíf Moldrík með ADHD: Hafa getuna til að horfa út fyrir boxið Atvinnulíf Tækifæri í vátryggingakerfi til að draga úr verðbólgu Viðskipti innlent „Vefveiðar eru ekki tæknivandamál, þær eru mannlegt vandamál“ Viðskipti innlent Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Viðskipti innlent Alltaf jafn hressandi að fara út og tala aðeins við hundinn Atvinnulíf Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Viðskipti erlent Þórarinn dæmdur fyrir markaðsmisnotkun Viðskipti innlent Nvidia metið á 615 billjónir króna Viðskipti erlent Markaðurinn tók tíðindunum vel Viðskipti innlent Fleiri fréttir Göngugreining getur leyst stoðkerfisverki Armar byggir á traustum grunni og horfir til framtíðar Orkan fyrst eldsneytisfyrirtækja á Íslandi með umhverfisvottun fyrir allar stöðvar Dagur verkfræðinnar: Vilja vekja áhuga ungs fólks á tækni- og raungreinum BYKO og Tækniskólinn sameina krafta sína á Verk og vit Auðvelda Íslendingum að skilja ekkert eftir Greiðsluáskorun Ein heild – sveigjanlegar lausnir í byggingariðnaði Leitin að iðnaðarmanni ársins er hafin Verða af hundruðum þúsunda á ári þegar akstursdagbókin gleymist Orkuveitan jafnar stöðu foreldra á vinnumarkaði Orion Tannlæknastofa kynnir starfsemi sína í Budapest og Reykjavík - Hringferð í kringum landið í Apríl Kulnun, kostnaður og gervigreind: Hvað gera stjórnendur nú? Umferðaröryggi í brennidepli á Forvarnaráðstefnu VÍS Í hvað eru peningarnir þínir að fara? Sjá meira
Orion Tannlæknastofa kynnir starfsemi sína í Budapest og Reykjavík - Hringferð í kringum landið í Apríl