Þórir með besta leikmann heims utan hóps í fyrsta leik á ÓL Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. júlí 2024 11:31 Norðmenn verða án hinnar frábæru Henny Ellu Reistad í leiknum í kvöld. EPA-EFE/Beate Oma Dahle Þórir Hergeirsson er mættur á sína fjórðu Ólympíuleika sem aðalþjálfari norska kvennalandsliðsins og fyrsti leikur liðsins á móti Svíþjóð í kvöld.
Undir stjórn Þóris hafa norsku stelpurnar unnið gull (2012) og brons (2016, 2021). Þórir hefur tilkynnt hvaða fjórtán leikmenn verða til taks í kvöld en athygli vekur að Henny Reistad, besti leikmaður heims á síðasta ári, er ekki meðal þeirra. NRK segir frá. Reistad hefur verið kosin mikilvægasti leikmaðurinn á síðustu tveimur stórmótum, EM 2022 og HM 2023. Reistad er að glíma við ökklameiðsli og er því ekki klár í slaginn. Þórir tekur enga óþarfa áhættu með hana og tekur í staðinn Thale Rushfeldt Deila í hópinn. Deila spilar sinn fyrsta leik á Ólympíuleikunum í kvöld. „Það er ekkert sem ég vildi meira en að spila leikinn en sú þrá má ekki stjórna ákvörðuninni. Við gerum það sem er best fyrir fótinn,“ sagði Reistad við norska ríkisútvarpið í gær. Á heimsmeistaramótinu síðastliðinn desember endaði norska liðið í öðru sæti en Reistad var kosin mikilvægasti leikmaður mótsins. Hún var næstmarkahæst á mótinu með 52 mörk í 9 leikjum og gaf einnig 24 stoðsendingar. Hún nýtti 74 prósent skota sinna og skoraði bara fjögur mörk úr vítum.
Ólympíuleikar 2024 í París Mest lesið Rekinn frá Stjörnunni Körfubolti Skömmin sé nægileg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættanlegt“ Fótbolti Orri hélt liðsfund án aðkomu Arnars Fótbolti Algjört bíó í Eyjum: Ótrúlegt klúður og tvö gul og rautt á sömu sekúndu Íslenski boltinn Kane lendir um helgina Körfubolti Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Handbolti Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Körfubolti Landsliðskonan ólétt og leggur skóna á hilluna Íslenski boltinn Ingibjörg orðlaus: „Hversu heppinn er þessi litli strákur?“ Fótbolti „Stígðu út úr torfkofanum, kona“ Sport Fleiri fréttir Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Sjá meira