Lægð á leið til landsins en sól á Suðurlandi í dag Lovísa Arnardóttir skrifar 27. júní 2024 08:43 Það verður líklega ágætt veður á Selfossi í dag. Vestur af Skotlandi er lægð á leið norður og skilin frá henni eru að nálgast Austfirði með norðlægri átt og rigningu. Er líður á daginn verður norðanátt á öllu landinu, yfirleitt kaldi eða stinningskaldi.
Þá verður rigning norðaustan- og austantil en annars bjart með köflum og stöku skúrir. Hiti verður á bilinu fimm stigum í þokulofti við norður- og austurströndina upp í 16 stig á Suðurlandi þar sem sólar nýtur við. Í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofunnar kemur svo fram að í nótt nálgist lægðin landið enn frekar og þá hvessi. Á morgun verður norðvestan hvassviðri á norðaustan- og austanverðu landinu og víða slær í storm á Austfjörðum og sunnan undir Vatnajökli. „Það er því ráðlegt að fara að öllu með gát á þessu svæði og líklegt að ekki verði ferðafært með aftan í vagna fyrr en á laugardaginn,“ segir enn fremur í hugleiðingunum. Nánar á vef Veðurstofunnar og um færð vega á vef Vegagerðar, umferdin.is Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Norðvestan 5-13 m/s og þurrt og bjart veður um landið vestanvert, en rigning eða súld austantil fram eftir degi. Hiti frá 5 stigum norðaustanlands að 20 stigum syðst á landinu. Á sunnudag: Suðlæg átt 3-8 m/s, og víða bjartviðri en 8-13 m/s og rigning vestantil síðdegis. Hiti 10 til 24 stig, hlýjast um landið norðaustanvert. Á mánudag: Suðvestlæg eða breytileg átt 3-10 m/s og bjart með köflum, en rigning austast í fyrstu. Hiti 8 til 18 stig, svalast á annesjum fyrir norðan, en hlýjast á Suðausturlandi. Á þriðjudag: Fremur hæg austlæg átt og víða rigning sunnan- og austantil, en ananrs yfirleitt þurrt. Hiti 9 til 16 stig. Á miðvikudag: Útlit fyrir norðaustlæga átt með skúrum um mest allt land. Heldur svalara.
Veður Færð á vegum Mest lesið Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Innlent Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Innlent Fleiri fréttir Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Sjá meira