Um er að ræða 98 fermetra járnklætt timburhús á tveimur hæðum. Neðri hæð hússins skiptist í tvær samliggjandi stofur, eldhús, baðherbergi og forstofu. Á efri hæðinni eru fjögur svefnherbergi. Úr einu þeirra er gengt út á vestur svalir. Við húsið er fallega gróin og afgirt lóð með timburverönd, að því er segir á fasteignavef Vísis.

Við Austurgötu standa mörg af elstu og fallegustu húsum Hafnarfjarðar. Þar sem byggð hafa verið ný hús við götuna, hefur þess verið gætt að þau falli vel að þeirri götumynd sem fyrir er.




Pétur hóf ferilinn sem bæjarstjóri Hveragerðisbæjar af krafti í mars síðastliðinn. Síðustu ár sinnt embætti biskupsritara og stýrði samskiptamálum kirkjunnar. Þar á undan var Pétur sveitarstjóri Súðavíkurhrepps auk þess sem hann starfaði sem formaður fjórðungssambands Vestfjarða og formaður Vestfjarðarstofu.