Ósýnilegi maðurinn á Austurvelli Kristinn Jón Ólafsson skrifar 20. júní 2024 11:01 Á 80 ára lýðveldisafmælinu felldi ég tár innra með mér á Austurvelli. Tilefnið var þó ekki girðingin sem að valdið telur að þurfi að reisa til að verja sig frá okkur. Gjáin er nefnilega víðar sem við þurfum öll að taka þátt í að brúa. Ég var á flakki með börnin framhjá Jóni afmælisbarni eftir viðkomu á Klambratúni, Hljómskálagarðinum og Ráðhúsinu. Klukkan var að slá 16 og við nýbúin að sleikja á okkur munnvikin eftir að hafa gætt okkur á sykursætum lýðveldis möffins. Sá sem enginn vill sjá Útundan mér sé ég mann á róli. Stundarkorni síðar fellur sami maður kylliflatur á flötina beint fyrir framan mig og börnin. Ég krýp niður á hnén til þess að athuga með lífsmörk. Ungmennin á vellinum bregðast skjótt og faglega við; unglingurinn minn víkur til hliðar í ró með yngra barnið og tveir ungir herramenn hringdu í Neyðarlínuna. Hér lá hönd mín á hjarta ókunnugs manns þar sem ég fann á tímapunkti hvorki púls hans né andardrátt eftir yfirliðið. Ég kallaði skelkaður; ,,Er einhver læknir á staðnum?” Viðbrögðin sem ég uppskar voru takmörkuð, þrátt fyrir fjölda fólks sem voru samankomin á Austurvelli á þjóðhátíðardegi okkar Íslendinga. Tveir karlmenn ganga upp að okkur í grasinu; annar spyr mig hvort ég sé læknir sem ég neita, og hinn talar um sjúklinginn eins og þekkt vandamál. Og báðir halda svo áfram sinni iðju út í daginn. Ósýnilegi maðurinn rankaði blessunarlega við sér á ný og tók hann fast í hönd mér við hjartað sitt - þakklætið og umhyggjan streymdi okkar á milli yfir landamæri, án orða. Búinn á líkama og sál. Á sama tíma brast sorgin innra með honum út - og ég grét innra með mér með honum. Eigum við öll sama rétt á aðstoð? Tíminn þar sem ég hlúði að manninum er óljós í minni, en ég set stórt spurningarmerki við að viðbragðsaðilar brugðust ekki kvikar við þegar hringt var í Neyðarlínuna og tilkynnt um að maður hafði misst meðvitund. Og þegar hringt var í annað sinnið í 112, þar sem ekkert bar á sjúkrabíl, var spurt af viðbragsaðilum hvort að nafnið á viðkomandi væri ekki X. Hefði verið brugðist skjótar við ef um annan aðila hefði verið að ræða? Fordómarnir leynast nefnilega víða innra með okkur og við þurfum að byrja á því að viðurkenna þá. Einungis þá getur mannúðin orðið ríkjandi. Stutta sagan er sú að enginn sjúkrabíll kom. Eftir dágóðan tíma komu þrír lögreglumenn röltandi og einn þeirra mælti við mig höstuglega og án spurninga; ,,Við tökum nú yfir”. Mér var ekki vel við að yfirgefa manninn sem ég hafði deilt þessari erfiðu stund með, en börnin biðu á kantinum. Við hjálpum ekki fólki með því að refsa því Sorgin magnaðist daginn eftir þegar ég las frétt á Vísi um ómanneskjuleg viðbrögð lögreglunnar gagnvart sama manni í Bankastræti um klukkustund eftir að hann varð meðvitundarlaus á vegi okkar á Austurvelli þann 17. júní. Af myndum og myndbrotum af atvikinu að dæma virðast einnig sömu lögreglumennirnir vera að verki sem komu að okkur á Austurvelli og tóku við ,,aðhlynningunni” á honum. Margar spurningar vakna: Var manninum veitt heilbrigðisaðstoð eftir að hann missti meðvitund? Samkvæmt mbl viðtali frá 18. júní við aðstoðaryfirlögregluþjón á höfuðborgarsvæðinu hafði lögreglan gengið fram á manninn. Það er eitthvað sem vantar í söguna hér þar sem bæði lögreglan og Neyðarlínan voru upplýst um veikindi mannsins a.m.k. tæpri klst. fyrir handtökuna - auk þess sem að lögreglan hafði tekið að sér að hlúa að honum á Austurvelli. Hvernig stendur á því að lögreglan beitir veikan mann ofbeldi vitandi að hann hafi fallið í yfirlið og misst meðvitund innan við klst. áður? Hér er um veikan einstakling að ræða sem þarf á sérfræðiaðstoð að halda. Hvar er manngæskan og faglegu viðbrögðin sem við borgarar eigum að treysta á frá viðbragðsaðilum í málum sem þessum? Verkferlar og ofbeldi sem lögreglan beitir í þessum aðstæðum eru merki um þekkingar- og úrræðaleysi sem þarf að bæta strax með auknum stuðningi við viðbragðsaðila, fyrirbyggjandi aðgerðum og fræðslu sem stuðlar að umburðarlyndi og víðsýni. Ég velti fyrir mér hvort að mannúðlegri nálgun á Austurvelli af hálfu viðbragðsaðila hefði mögulega komið í veg fyrir harkalegu viðbrögðin stuttu síðar í Bankastrætinu. Valdbeiting á aðeins að vera beitt í ítrustu neyð - viðbrögð sem fela í sér sinnuleysi og ofbeldi leiða okkur í vítahring sem mun einungis skila sér í auknum skaða fyrir okkur öll. Við verðum ótengdari og fátækari sem samfélag. Með mannúð að vopni Ég vil búa í samfélagi sem byggir á trausti, samvinnu og náungakærleik. Ef eitthvað bjátar á og við erum óviss um ástand þeirra sem verða á vegi okkar - þá þurfum við að bregðast við, spyrja spurninga og hjálpast að. Samkennd, hlustun og umhyggja er ein máttugasta tengslabrúin okkar á milli í uppbyggingu kærleiksríks samfélags. Vissulega er um mikla undirfjármögnun og álag á lögreglunni að ræða sem þarf að bæta úr. Tengt því lögðum við fram í borgarstjórn þann 23. apríl síðastliðinn hvatningu til Alþingis og ríkisstjórnarinnar um að fjölga hverfis/samfélagslöggum til að stuðla að auknu trausti og jákvæðri tengslauppbyggingu við íbúa. Að lokum vil ég árétta að vangaveltur mínar eiga ekki að snúa beint að viðbragðsaðilum, heldur að þeim ferlum og menningu sem þar virðist ríkja. Ég skora á dómsmálaráðherra að setja í gang stefnumótun og umbreytingu á ferlum innan stofnana viðbragðsaðila þar sem aðaláherslan sé á þverfagleg neyðarteymi og menningarbreytingu þar sem mannúðin er höfð að vopni öllum til heilla. Höfundur er fyrsti varaborgarfulltrúi Pírata. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Píratar Lögreglan Kristinn Jón Ólafsson Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar