Sest við flygilinn og setur íslenska tónlist í nýjan búning Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 17. apríl 2024 14:01 Magnús Jóhann og Floni koma saman í Hannesarholti. SAMSETT Tónlistarmaðurinn og píanóleikarinn Magnús Jóhann Ragnarsson er með marga bolta á lofti. Hann var að senda frá sér EP plötuna Concrete Box og stendur fyrir nýrri tónleikaröð í Hannesarholti undir nafninu Á inniskónum.
Hér má sjá tónlistarmyndband við EP plötuna: Fannst synd hvað flygillinn fékk litla notkun Hannesarholt og Magnús Jóhann Ragnarsson hafa hafið samstarf um skipulagningu tónlistarviðburða í Hannesarholti. „Störf hans felast í því að bóka tónlist af ýmsum toga inn í Hljóðberg, tónleikasal Hannesarholts og setja saman fjölbreytta dagskrá í hverjum mánuði. Dagskrá aprílmánaðar hefur þegar verið birt og hefur farið glæsilega af stað með tónleikum hljómsveitarinnar ADHD og tvíeykisins Ingibjargar Turchi og Hróðmars Sigurðssonar,“ segir í fréttatilkynningu frá Hannesarholti. Magnús segist löngum hafa verið aðdáandi Hannesarholts. „Ég setti mig í sambandi við Hannesarholt því mér þótti synd hvað þessi frábæri tónleikasalur og Steinway flygill fengu litla notkun. Ég stakk upp á því að ég gæti hjálpað þeim að setja saman dagskrá í hverjum mánuði og myndi svo vera með tónleikaröð sjálfur,“ segir Magnús. View this post on Instagram A post shared by Magnu s Jo hann Ragnarsson (@magnus__johann) Setur íslenska tónlist í nýjan búning Magnús mun sjálfur setjast við flygilinn í tónleikaröðinni Á inniskónum þar sem hann fær til sín gesti víðsvegar að úr tónlistarlífi Íslendinga. Magnús setur tónlist viðmælenda sinna í nýjan búning með dyggri aðstoð hljóðgervla, trommuheila og hljómborða af ýmsum toga og spyr þá svo spjörunum úr. Fyrsti gestur Magnúsar þann 20. apríl næstkomandi er rapparinn Floni en hann hefur verið einn vinsælasti tónlistarmaður landsins frá því að hann hóf að gefa út tónlist árið 2017. Undanfarin misseri hafa þeir unnið hörðum höndum að því að klára nýja breiðskífu Flona, Flona III. Þeir munu telja í ný lög af plötunni auk eldri slagara, ræða saman um sköpunarferlið og feril Flona. Tónleikarnir fara fram í Hljóðbergi í Hannesarholti en salurinn tekur 80. manns í sæti og státar af glænýjum hljómflutningsbúnaði, sérvöldum af Bergi Þórissyni. Enn sem áður getur tónlistarfólk sett sig í samband við Hannesarholt og haldið tónleika. „Mér fannst kjörið að hefja tónleikaröðina mína á því að fá Flona til mín sem gest því við höfum þekkst lengi og unnið mikið saman að tónlist hans og annarra. Ég þekki tónlist hans líka vel, hef spilað hana áður og samið eitthvað af henni með honum. Við erum líka að leggja lokahönd á þriðju breiðskífu hans, Flona III, sem hefur verið fimm ár í bígerð. Engill er nýkomið út og hann gefur út nýtt lag í næstu viku þannig að hann er mjög viðeigandi gestur akkúrat núna í apríl. Floni er líka mjög músíkalskur tónlistarmaður, frábær flytjandi og lagahöfundur þannig að það er líka gaman fyrir fólk að fá að skyggnast aðeins inn í hugarheim hans. Kynnast sköpunarferlinu hans. Hann er til að mynda pródúser sjálfur og hefur gert mikið af töktunum sínum sjálfur og svona.“ Hér má hlusta á EP plötu Magnúsar á streymisveitunni Spotify. Það er sömuleiðis nóg um að vera í Hannesarholti. Auk þessara viðburða Magnúsar er eftirfarandi framundan í apríl: 25. apríl spilar Björg Brjánsdóttir ný og samtíma verk á flautu kl. 20:00. 27. apríl Minning um Sumar söngtónleikar með Sólveigu Óskarsdóttur og Önnu Þórhildi Gunnarsdóttur, klukkan 15:00. Seinna sama dag klukkan 17:00 er Syngjum Saman á ensku til heiðurs Dick Ringler sem þýddi ljóð Jónasar á ensku og þann 30. apríl er Kvartett Óskars Guðjónssonar með tónleika í tilefni alþjóða jazzdagsins.
Tónleikar á Íslandi Tónlist Samkvæmislífið Menning Mest lesið Bónorð yfir síðum bjór á Brooklyn-brúnni Lífið Kolfinna Nikulás og Sturla Atlas halda á ný mið Lífið Konungur retróleikja slekkur á straumum: „Ég vissi ekki að maður gæti fengið borgað fyrir þetta“ Leikjavísir Laufey óskar ástinni sinni til hamingju með daginn Lífið Hvað veistu um... Ross í Friends? Lífið Sindri gerðist trukkabílstjóri Lífið Greta Salóme á von á sínu þriðja Lífið Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí Lífið GusGus drottning og frú selja í Hafnarfirði Lífið Getur siðblinda frá afanum dúkkað upp hjá barnabörnum? Áskorun Fleiri fréttir Quarashi hyggst „Do it again“ Kvennatónlistarhátíð Rodrigo vekur athygli Tónlistargoðsögnin Clive Davis er látinn Jeremy Strong „reivaði“ við Retro Stefson Bein útsending frá Bergmáli á Þingvöllum Tay Keith er fallinn frá aðeins 29 ára að aldri Hipsumhaps rýfur þögnina „Ég er skíthræddur“ Tónlistin bjargráð eftir erfiða kulnun Bonnie Tyler vöknuð úr dái Swae Lee heldur tónleika á Íslandi Guðrún Ýr og Birnir í eina sæng Madonna með heitustu dansmynd ársins Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Talay Riley stunginn til bana í Lundúnum „Pólitíkusar sem tala á þennan veg: Fokk jú“ „Þú getur ekki ráðist að mér þegar ég er að borða með ömmu minni“ Peabo Bryson er látinn Datt af sviðinu og beint í skurð „Stundum verður maður að segja fokk it“ „Við skoðuðum þennan markað og hann var allur í lausu lofti“ Íslenskur tónlistararfur loksins aðgengilegur öllum Mugison þakkar innilega fyrir sig Segir gagnrýnina til marks um normalíseringu barnagirndar Snúa aftur á byrjunarreit: „Það þekkir enginn rassinn á mér eins vel og Addi“ Týndi sjálfri sér til að þóknast öðrum Svona er Þjóðhátíðarlagið 2026 Blóð, sviti og tár skemmtilegra en að prumpa út lögum Bó átti að syngja á nýju lagi Stefáns: „Örlögin gripu í taumana“ Stendur með Bríeti í deilunni við Pálma Sjá meira
Konungur retróleikja slekkur á straumum: „Ég vissi ekki að maður gæti fengið borgað fyrir þetta“ Leikjavísir
Konungur retróleikja slekkur á straumum: „Ég vissi ekki að maður gæti fengið borgað fyrir þetta“ Leikjavísir