„Hann var alltaf mættur“ Smári Jökull Jónsson skrifar 26. mars 2024 22:05 Jón Dagur í baráttunni í leiknum í dag. Vísir/Getty Jón Dagur Þorsteinsson átti erfitt með að leyna vonbrigðum sínum eftir tap Íslands gegn Úkraínu. Hann sagði tapið það erfiðasta á hans ferli. „
Þetta er eins grátlegt og það gerist, ég veit ekki hvernig ég á að lýsa því eitthvað betur,“ sagði Jón Dagur þegar Stefán Árni Pálsson íþróttafréttamaður ræddi við hann eftir leikinn. Jón Dagur var líflegur í íslenska liðinu. Hann átti hættuleg skot að marki og skapaði hættu á vinstri kantinum með hraða sínum og leikni. „Mér leið í leiknum eins og það hafi munað litlu,“ sagði Jón Dagur um skotin sín. „Ég á eftir að sjá þetta aftur en það var eins og hann væri búinn að lesa mig. Hann var alltaf mættur,“ og á Jón Dagur þar við Andriy Lunin markvörðu Úkraínu. Íslenska liðið komst í 1-0 í fyrri hálfleiknum en Úkraína jafnaði í upphafi seinni hálfleiks og skoraði síðan sigurmarkið sex mínútum fyrir leikslok. „Það er erfitt fyrir mig að segja. Fyrsta markið leit „sloppy“ út og það breytti leiknum. Við vorum ennþá inni í þessu í stöðunni 1-1. Síðan kom seinna markið og við vorum búnir að eyða mikilli orku í að halda stöðunni. Það breytti leiknum.“ Íslenska liðið virkaði mjög þreytt á lokamínútunum og sagði Jón Dagur seinna markið hafa drepið leikinn. Var þetta erfiðasta tapið á hans ferli? „Hundrað prósent,“ sagði Jón Dagur svekktur að endingu.
EM 2024 í Þýskalandi Landslið karla í fótbolta Mest lesið Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Fótbolti „Ég er oftast mjög rólegur“ Körfubolti „Enski boltinn er annar heimur“ Enski boltinn „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ Fótbolti Fleiri fréttir „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Sjá meira