Rannsókn á málum tengdum Davíð Viðarssyni og starfsemi hans um borgina er í fullum gangi hjá lögreglunni og unnið er að því að yfirheyra þá sem eru í gæsluvarðhaldi. Aðjúnkt við Háskóla Íslands óttast að málið ýti undir fordóma gegn fólki frá Víetnam.
Svíþjóð fékk í dag formlega aðild að Atlantshafsbandalaginu og er landið þrítugasta og annað ríki bandalagsins. Dagurinn í dag markar tímamót því nú hefur landið horfið frá áratugalangri hlutleysisstefnu.
Þá fjöllum við um frumvarp um dánaraðstoð í beinni útsendingu og heimsækjum afurðahæsta kúabú landsins.
Þetta og fleira í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30.