FH-ingar endurheimtu þriggja stiga forskot á toppnum Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 27. febrúar 2024 21:05 Einar Bragi Aðalsteinsson var markahæstur í liði FH-inga með níu mörk. Vísir/Anton Brink Topplið FH vann öruggan ellefu marka sigur er liðið tók á móti Fram í Olís-deildar karla í handbolta í kvöld, 36-25.
Framarar héldu í við toppliðið framan af fyrri hálfleik og þegar um stundarfjórðungur var liðinn var staðan 8-6, FH-ingum í vil. FH-ingar byggðu þó upp gott forskot á lokamínútum fyrri hálfleiks og leiddu með fimm mörkum þegar flautað var til hálfleiks og liðin gengu til búningsherbergja, staðan 17-12. Heimamenn héldu svo áfram að auka forskotið á upphafsmínútum síðari hálfleiks og voru komnir átta mörkum yfir þegar um tuttugu mínútur voru til leiksloka. Eftir það litu FH-ingar aldrei um öxl og náðu mest þrettán marka forskoti í stöðunni 36-23. Framarar skoruðu hins vegar seinustu tvö mörk leiksins og niðurstaðan varð því ellefu marka sigur FH, 36-25. Einar Bragi Aðalsteinsson var markahæstur í liði FH-inga með níu mörk, en í liði Fram var Marel Baldvinsson atkvæðamestur með sjö stykki. FH-ingar tróna enn á toppi Olís-deildar karla, nú með 31 stig eftir 17 leiki, þremur stigum meira en Valur sem situr í öðru sæti. Fram situr hins vegar í fimmta sæti með 19 stig.
Olís-deild karla Fram FH Mest lesið Sjáðu þegar allt sauð upp úr í Kópavogi og glæsimark Sveins Íslenski boltinn Ólafur Ingi: „Mér skilst að hann hafi bara kýlt hann“ Íslenski boltinn Gætu orðið meistarar eftir vinnu á mánudaginn Íslenski boltinn Uppgjörið: ÍBV - FH 3-1 | Tíu Eyjamenn náðu fyrsta sigri í þrjá mánuði Íslenski boltinn Landsliðskonan ólétt og leggur skóna á hilluna Íslenski boltinn „Margt sem við þurfum að laga“ Körfubolti Algjört bíó í Eyjum: Ótrúlegt klúður og tvö gul og rautt á sömu sekúndu Íslenski boltinn Bjarni Jó hættur Íslenski boltinn „Mikil framför en því miður ekki nóg“ Körfubolti Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Körfubolti Fleiri fréttir Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Sjá meira