Standið við stóru orðin og lækkið vexti! Ásthildur Lóa Þórsdóttir skrifar 6. febrúar 2024 06:00 Opið bréf til peningastefnunefndar og Seðlabankastjóra Í nær tvö ár hafa gríðarlega miklar byrðar verið lagðar á heimilin í formi hárra vaxta. Allar þessar fjórtán vaxtahækkanir hafa hækkað afborganir húsnæðislána um hundruð þúsunda króna auk þess að hafa bein áhrif á leiguverð sem einnig hefur hækkað gríðarlega. Frá því að vaxtahækkunarbrjálæði Seðlabankans hófst hafa vextir verið hækkaðir um 1133%. Þessar hrikalegu hækkanir hafa verið lagðar á skuldsett heimili landsins í þeim „göfuga“ tilgangi að lækka verðbólgu og nú er svo komið að verðbólgan hefur lækkað úr 10,2% þegar hún var sem hæst og niður í 6,7%. Verðbólgan hefur lækkað stöðugt í 12 mánuði um 3,5 prósentustig eða 34,3% á einu ári. Ef verðbólgan hefði hækkað um sama hlutfall á einu ári hefðu vextir klárlega verið hækkaðir. Spurningin er bara hversu mikið. En hversu lengi þarf verðbólgan að fara lækkandi til þess að Seðlabankinn lækki vexti sína? NÚNA er kominn tími til að hefja vaxtalækkunarferlið. Þegar verðbólgan hækkaði um þriðjung í upphafi árs 2022, þá hækkuðu stýrivextir Seðlabankans um meira en þriðjung, eða 37%. Það er því eðlileg krafa að það sama gildi þegar verðbólgan hjaðnar. Ef stýrivextir Seðlabankans fylgdu sömu viðmiðum á niðurleið eins og á uppleið, væru þeir núna tæp 6%. Það gengur ekki að peningaöflin fái alltaf að haga seglum eftir sínum vindi. Heimilin eiga inni vaxtalækkun sem um munar og fyrri viðmið Seðlabankans til hækkunar gefa ágæta hugmynd um hve mikil sú lækkun ætti að vera. Eitthvað samræmi hlýtur að þurfa að vera í aðgerðum Seðlabankans. Lækkun verðbólgunnar núna er mun meiri en þær mörgu hækkanir sem notaðar voru sem afsökun fyrir því að hækka vexti og auka byrðar almennings til mikilla muna. Þá var ekki beðið til að leyfa áhrifum af þegar orðnum vaxtahækkunum að koma fram. Nei, þá var umsvifalaust hækkað, og því ekki nema sanngjarnt að gera ráð fyrir því núna að vextir verði umsvifalaust lækkaðir. Hagsmunagæsla bankanna Bankarnir eru þessa dagana að senda Seðlabankanum skýr skilaboð í dulbúningi einhverskonar spádóma. Alla þessa spádóma bankanna og varnaðarorð, ber að lesa með hagsmuni þeirra í huga og þeir eru ekki litlir. Það er t.d. ljóst að hagnaður Landsbankans var nær tvöfalt meiri í fyrra en á árinu þar á undan. Í því ljósi er rétt að minna á að venjulegt heimili sem tók 50 milljón króna lán á 4% vöxtum, greiddi þá 167.000 kr. í vexti á hverjum mánuði. Í dag greiðir þessi sama fjölskylda 448.000 kr. í vexti á hverjum mánuði. Mismunurinn er 281.000 kr. í hverjum einasta mánuði, eða 3,4 milljónir á ári. Allar „ráðleggingar“ bankanna, spár þeirra og skilaboð til Seðlabankans ber að skoða í þessu ljósi. Bankarnir hafa beinan og gríðarlega mikinn hag af háu vaxtastigi! Blæðandi heimili Sennilega vegna þess að ég hef barist fyrir hagsmunum heimila landsins í nokkuð mörg ár, berast mér stundum skilaboð frá örvæntingarfullu fólki sem ræður ekki við húsnæðisskuldir sínar lengur, vegna þessara glórulausu vaxtahækkana sem á þeim hafa dunið. Þeim hefur fjölgað mikið. Margir eru komnir á ystu nöf og sjá ekki fram á að ráða við ástandið lengur. Aðrir eru því miður komnir fram af brúninni nú þegar. Það stingur í hjartað að finna örvæntingu þessa fólks í þessum manngerðu hörmungum sem á þeim dynja. Þegar fólk á ekki fyrir mat út mánuðinn, eða getur ekki greitt af húsnæði sínu ef það velur að kaupa mat, missir það fljótt vonina. Og þegar vonin er horfin, fylgir heilsan oft í kjölfarið. Allt þetta fólk upplifir sig sem leiksoppa einhverra afla sem sjá þau eins og peð í ljótum leikjum sínum og hagnaðarútreikningum. „Fína fólkið“ sem spilar leikinn og hefur ákveðið að tefla venjulegu fólki fram sem fórnarpeðum, finnur ekki fyrir stýrivaxtahækkunum á eigin skinni á neinn hátt í líkingu við þann harkalega raunveruleika sem aðrir upplifa. „Fína fólkið“ hefur almennt aldrei upplifað raunverulegan skort, eða það að ráða ekki við afborganir á húsnæði sínu og nístandi áhyggjurnar sem því fylgja. Vistin í fílabeinsturni allsnægtanna er nefnilega bæði þægileg og góð. Lækkið vexti strax! Það er annaðhvort skemmtileg eða sorgleg staðreynd, eftir því hvernig á það er litið, að glórulausar vaxtahækkanir Seðlabankans hafa snúist upp í andhverfu sína því verðbólgan væri komin niður í 5% ef ekki væri fyrir áhrif þeirra á húsnæðislið vísitölunnar. Auk þess er morgunljóst að skuldir fyrirtækja hafa aukist og afborganir þeirra þyngst vegna þessara háu vaxta og einhvers staðar þurfa fyrirtækin að ná þessum kostnaðarauka til baka. Þau gera það að sjálfsögðu með því að hækka vöruverð, sem aftur eykur verðbólguna. Þessi svokallaða hagfræði er einfaldlega ekki að virka. Heimilin, sem allt þetta bitnar á og eru þolendur þessa ofbeldis Seðlabankans og stjórnvalda, eru komin að þolmörkum, ef ekki yfir þau. Það er ekki með nokkru móti réttlætanlegt að láta heimilin bera þessar byrðar áfram og algjörlega óásættanlegt ef nota á neyð Grindvíkinga sem afsökun fyrir því að lækka ekki vexti strax. Það verður erfitt að bæta heimilum og fjölskyldum þann skaða sem þegar er búið valda þeim. Núna hefur verðbólgan lækkað og heimilin eiga inni lækkun á vöxtum án tafar til að gera ekki illt ennþá verra. Þau munar um allt. Hvert einasta prósentustig skiptir þau máli og almenningur getur ekki beðið á meðan fólkið í fílabeinsturninum “sér aðeins til hver þróunin verður”. Lækkið vexti strax! Heimilin eru ekki fóður fyrir bankana! Höfundur er þingmaður Flokks fólksins og formaður Hagsmunasamtaka heimilanna Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ásthildur Lóa Þórsdóttir Verðlag Seðlabankinn Mest lesið Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Skoðun Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kærleikur er pönk Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Er kostnaðurinn einskis virði? Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi þess að lifa æskuna af Einar Torfi Einarsson Reynis skrifar Skoðun Hvað ef svarið hefði verið já? Eva Magnúsdóttir skrifar Skoðun Húsnæðisstefnan sem gerði ungt fólk að leiguliðum Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Veist þú í raun hvernig gervigreind virkar? Bjarki Sigurjónsson Thorarensen skrifar Sjá meira
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar