Dæmdur í tíu ára fangelsi Atli Ísleifsson skrifar 30. janúar 2024 08:44 Imran Khan er fyrrverandi krikketstjarna sem sneri sér að stjórnmálum og var forsætisráðherra á árunum 2018 til 2022. AP Dómstóll í Pakistan hefur dæmt Imran Khan, fyrrverandi forsætisráðherra landsins, í tíu ára fangelsi fyrir að hafa lekið ríkisleyndarmálum.
AP greinir frá þessu og segir dóminn enn eitt áfallið fyrir Khan sem var vikið úr embætti á vormánuðum 2022 í kjölfar þess að vantrauststillaga var samþykkt á þingi. Hann afplánar nú þegar þriggja ára fangelsisdóm vegna fjármálamisferlis. Shah Mehmood Qureshi, fyrrverandi utanríkisráðherra og næstráðandi í PTI, flokki Khan, var líkt og Khan dæmdur í tíu ára fangelsi fyrir sömu sakargiftir. Lögmaður Khan segist ekki viðurkenna dóminn í málinu og segir hann ólöglegan. Hann segir að dómnum verði áfrýjað. Khan er fyrrverandi krikketstjarna sem sneri sér að stjórnmálum og var forsætisráðherra á árunum 2018 til 2022. Eftir að hann var hrakinn úr embætti hefur hann varið sakaður og ákærður í fjölda mála, meðal annars vegna gruns um spillingu, stuðning við hryðjuverkastarfsemi og fyrir að hvetja til ofbeldisverka. Hinn sjötugi Khan segist þó sjálfur vera saklaust fórnarlamb pólitískra nornaveiða. Þingkosningar fara fram í Pakistan 8. febrúar næstkomandi.
Pakistan Tengdar fréttir Fyrrverandi forsætisráðherra Pakistan dæmdur í þriggja ára fangelsi Imran Khan, fyrrverandi forsætisráðherra Pakistan, hefur verið dæmdur til þriggja ára fangelsisvistar á grundvelli ásakana um spillingu. 5. ágúst 2023 09:02 Mest lesið Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Innlent Fleiri fréttir Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Sjá meira
Fyrrverandi forsætisráðherra Pakistan dæmdur í þriggja ára fangelsi Imran Khan, fyrrverandi forsætisráðherra Pakistan, hefur verið dæmdur til þriggja ára fangelsisvistar á grundvelli ásakana um spillingu. 5. ágúst 2023 09:02