Hlutabréf í L'Oréal hækkuðu verulega í gær en sala á vörum fyrirtækisins hefur verið að ná sér á strik undanfarið eftir að hafa dregist saman í kórónuveirufaraldrinum.
Bettencourt Meyers er varaformaður stjórnar L'Oréal en hún og fjölskylda hennar eru stærsti einstaki hluthafinn í fyrirtækinu og eiga 35 prósent hlut.
Bettencourt Meyers tók við L'Oréal-veldinu þegar móðir hennar, Liliane Bettencourt, lést árið 2017.
Liliane, sem var um tíma ríkasti Frakkinn, elskaði sviðsljósið og var náin vinur ýmissa leiðtoga Frakklands. Undir hið síðasta átti hún í opinberum illdeilum við dóttur sína, einkabarnið sitt, og sagði meðal annars í sjónvarpsviðtali óska þess að Francoise hefði getað beðið þolinmóð eftir því að hún félli frá í stað þess að fara fram gegn henni.
Francoise voru dæmd yfirráð yfir fjármálum móður sinnar árið 2011, þegar Liliane var úrskurðuð með elliglöp. Annar fjölskyldumeðlimur fékk það hlutverk að fara með ákvarðanir um heilsu og velferð Liliane.
Ólíkt móður sinni hefur Francoise haldið sig frá sviðsljósinu en hún er sögð spila á píanó margar klukkustundir á degi hverjum og hefur ritað tvær bækur; ítarlega rannsókn á Biblíunni og bók um fjölskyldutengsl innan grísku goðafræðinnar.