Yfirgefur Magdeburg í sumar: „Þeir vildu hafa mig áfram“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 25. desember 2023 12:46 Janus Daði Smárason gengur í raðir ungverska liðsins Pick Szeged frá Magdeburg í sumar. Vísir/Getty Janus Daði Smárason mun ganga til liðs við ungverska liðið Pick Szeged næsta sumar frá Evrópumeisturum Magdeburg.
Á Þorláksmessu var greint frá því að Janus Daði myndi ganga til liðs við Pick Szeged næsta sumar, aðeins ári eftir að hann gekk í raðir Magdeburg. Janus var fenginn til liðs við Evrópumeistarana frá Kolstad í kjölfar þess að Gísli Þorgeir Kristjánsson meiddist og fjárhagsvandræði Kolstad urðu til þess að auðvalt reyndist fyrir Magdeburg að sækja íslenska landsliðsmanninn. „Ég skrifaði undir tveggja ára samning og aðdragandinn að þessu er búinn að vera þannig að ég náttúrulega skipti um lið síðasta sumar og skrifaði þá bara undir eins árs samning þannig ég þurfti auðvitað að vera undirbúinn fyrir það hvað ég myndi gera næsta sumar,“ sagði Janus. „Eftir að hafa hugsað þetta vel og lengi þá bara endar þetta þarna.“ Markmiðið úrslitahelgi Meistaradeildarinnar Eins og áður segir gekk Janus í raðir Magdeburg frá norska liðinu Kolstad síðastliðið sumar, en hann hefur einnig spilað með liðum á borð við Aalborg í Danmörku og Göppingen í Þýskalandi. Hann segir að þrátt fyrir örlítil vandræði Pick Szeged undanfarið sé þetta lið sem eigi heima meðal þeirra bestu. „Þeir urðu náttúrulega ungverskir meistarar 2018, 2021 og 2022, en eftir það er þetta búið að fara aðeins niður á við. Það eru margir að fara í sumar og það er svolítið verið að skipta út. Það er verið að yngja aðeins upp og gera þetta aðeins ferskara, svipað og Telekom Veszprém hefur gert.“ „En það er tiltölulega nýlega búið að byggja glæsilega höll þarna og áhuginn er mikill. Þetta lið er búið að vera á toppnum í Ungverjalandi ásamt Veszprém síðustu ár. Markmiðið þarna er að vera í þessari Final 4 helgi í Meistaradeildinni. Svo er auvitað mikill innbyrðis rígur við Veszprém heima fyrir,“ sagði Janus. Fékk boð um að vera áfram Eftir nokkrar vikur af töluverðri bekkjarsetu hefur Janus komið sterkur inn í lið Magdeburg þar sem hann hefur fengið meiri spiltíma sem hefur skilað sér í sterkri frammistöðu fyrir liðið. Hann segir að auðvitað hafi hann hugsað um það að reyna að berjast um miðjumannsstöðuna við Gísla Þorgeir nú þegar hann er að snúa aftur úr meiðslum, en upprunalega planið hafi alltaf verið að taka eitt ár hjá Magdeburg og skoða svo möguleikana í kringum sig. „Upprunalega var það nú planið. En það er auðvitað mikil um meiðsli hjá okkur og svona þannig maður hefur fengið að spila mikið og það gengur vel,“ sagði Janus. Janus Daði hefur fengið stærra og stærra hlutverk hjá Magdeburg undir stjórn Bennet Wieger.Vísir/Getty „Ég átti samræður við klúbbinn hérna úti og þeir vildu hafa mig áfram. En ég hefði viljað græja framtíð mína í október eða eitthvað svoleiðis þess vegna upp á að hafa smá öryggi. Þess vegna er þetta búið að taka svolítinn tíma og á endanum ákvað ég að þetta væri það besta í stöðunni fyrir mig. Ég er auðvitað spenntur, en á sama tíma er strembið hálft ár framundan.“ „Við erum að spila um alla titla og það gengur vel þannig ég er mjög spenntur fyrir komandi mánuðum með Magdeburg.“ Allir titlarnir í boði Eins og Janus segir er hálft tímabil eftir með Magdeburg áður en hann rær á önnur mið og heldur til Ungverjalands. Liðið hefur nú þegar tryggt sér heimsmeistaratitil félagsliða á þessu tímabili og er enn í harðri baráttu um alla aðra titla sem í boði eru. Liðið trónir á toppi þýsku deildarinnar að 18 umferðum loknum, er komið í átta liða úrslit þýsku bikarkeppninnar og er á góðri leið með að tryggja sér beint sæti í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu, þar sem Magdeburg á titil að verja. „Það væri náttúrulega draumastaða að ná að tékka allt af hérna í Þýskalandi. Meistaradeildin er alltaf Meistaradeildin. Við teljum okkur vera með lið sem á að geta keppt um allt.“ „En svo hefur það oft sýnt sig í þýsku deildinni að þú mátt hvergi misstíga þig. Það er oft stutt á milli og við sjáum það bara með hin toppliðin sem hafa verið að lenda í því að kasta frá sér stigum.“ „En klúbbur eins og Magdeburg, sem undanfarin kannski fjögur ár hefur tekið mikið stökk og verið í mikilli þróun, er bara búinn að stimpla sig inn sem eitt sterkasta lið í heiminum. Þegar það er þannig er bara stefnt fulla ferð á alla titlana. Ekki spurning,“ sagði Janus að lokum.
Þýski handboltinn Ungverski handboltinn Mest lesið Þurfti að ýta þjálfaranum af sér þegar hún kom í mark Sport Engin naglalögregla á HM kvenna en nýjar reglur um neglur Handbolti Scholes sakar Slot um virðingarleysi og að hann fái það í bakið núna Enski boltinn Sjáðu kraftaverkið í riðli Íslands Körfubolti Segir Slot hafa viku til þess að bjarga starfi sínu Enski boltinn Fantasýn: Eyjólfur Sverris pakkar fjölskyldunni saman Enski boltinn „Við sýndum mikinn töffaraskap í lokin“ Körfubolti Ágúst Orri: Þeir nenntu ekki að mæta í mínus þremur Fótbolti „Þær eru með frábæran línumann“ Handbolti Mark dæmt af Alberti í tapleik í Sambansdeildinni Fótbolti Fleiri fréttir „Ég er með mikla orku“ Spilaði með brotið bringubein í tvo mánuði „Þær eru með frábæran línumann“ Engin naglalögregla á HM kvenna en nýjar reglur um neglur „Þetta lítur verr út en þetta var“ Orri var flottur í Íslendingaslagnum Gott kvöld fyrir Norðurlandaþjóðirnar á HM í handbolta Umfjöllun: Afturelding-Haukar 31-22 | Mosfellingar léku sér að toppliðinu KA-menn búnir að byggja vígi í KA-heimilinu Valsmenn með fimmta sigurleikinn í röð Haukur kom að tíu mörkum og Ljónin með fyrsta sigurinn síðan í október Viktor gat ekki spilað í Meistaradeildinni í kvöld „Hún lamdi aðeins á mér“ Elísa er klár í slaginn gegn Serbíu: „Ég er alveg þyrst í að komast út á gólf“ „Mér finnst þetta vera hræðilegt“ Skýrsla frá Stuttgart: Betra en búist var við Magdeburg áfram með fullt hús í Meistaradeildinni Serbarnir unnu með tólf mörkum „Ágætt að byrja á þessu og blóðga liðið“ Sturluð upplifun og skjálftinn farinn „Náðum að stríða þeim og það var markmiðið“ Nýtti pirringin á réttan hátt Margt jákvætt en þýska stálið refsaði Alfreð Gísla keyrði í rúma sex tíma til að sjá íslensku stelpurnar spila Helmingur hópsins að spila á HM í fyrsta sinn Elísa ekki með og Andrea utan hóps „Þeirra helsti veikleiki“ „Það helsta sem ég sakna við Þýskaland“ Fiskur og rauðvín í Barcelona í skugga sögusagna: „Best að segja sem minnst“ Ætla að senda skýr skilaboð gegn Íslandi og gætu fengið vænan bónus Sjá meira