Tveggja ára fangelsi fyrir samræði við þrettán ára stúlku Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 6. desember 2023 17:56 Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjaness í dag. Vísir/vilhelm 23 ára karlmaður og hælisleitandi sem búið hefur á Íslandi í þrjú ár hefur verið dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn tveimur stúlkum. Önnur var þrettán ára sem hann kynntist á Snapchat en hin var dóttir kærustu hans og glímdi við þroskaskerðingu.
Fyrra málið má rekja aftur til febrúar 2022 þegar þrettán ára stúlka sendi karlmanninum vinabeiðni á Snapchat. Þar tóku þau upp spjall og þar spurði karlmaðurinn hvort stúlkan væri til í að veita honum munnmök. Í framhaldinu ræddu þau samfarir og lýstu þau bæði ánægju af samskiptunum. Þá lá fyrir að stúlkan hafði tjáð honum að hún væri þrettán ára og hann sagst vera 21 árs. Karlmaðurinn sótti stúlkuna á heimili hennar og fór með hana að heimili hans í bílskúr í Reykjavík. Karlmaðurinn og stúlkan eru ein til frásagnar um hvað gerðist þar. Fram kemur í dómnum að málefni stúlkunnar hafa verið á borði barnaverndar í mörg ár og frá árinu 2017 hefur hún verið í varanlegu fóstri. Hún glímir við mikinn og fjölþættan vanda vegna áfalla og ofbeldis í æsku. Þvertók fyrir allt kynferðislegt Karlmaðurinn neitaði sök og þrætti fyrir allt kynferðislegt samneyti við stúlkuna í bílskúrnum. Við mat á áreiðanleika framburðar hans var litið til þess að hann hefði verið missaga um hvað hann vissi um aldur stúlkunnar, staðið í þeirri trú að hún væri 17 til 18 ára, og ekki áttað sig á því hve ung stúlkan var fyrr en hún tók ofan hettu í bílskúrnum. Dómurinn mat þennan framburð ótrúverðugan. Þá var hann tvísaga um tilgang heimsóknar hennar og einkar ótrúverðug frásögn hans um að hafa skellt í sig umtalsverðu magni af áfengi á örfáum mínútum og þannig orðið afhuga af frekari samvistum vegna neyslunnar. Stúlkan sagði karlmanninn hafa sótt sig að morgni dags og ekið í bílskúrsíbúð sína. Frásögn hennar um samfarir þeirra samrýmist textaskilaboðum þeirra í aðdragandanum og sömuleiðis til vinkvenna hennar þess efnis að hún hefði misst meydóm sinn með samförum við fullorðinn karlmann. Samræði fullorðins við þrettán ára ávallt nauðgun? Taldi hafið yfir skynsamlegan vafa að karlmaðurinn og þrettán ára stúlkan hefðu haft samfarir í bílskúrnum og hann vitað að stúlkan væri svo ung. Var hann því sakfelldur fyrir að hafa samræði við barn. Ekki þótti sannað að stúlkan hefði veitt honum munnmök. Dómurinn tók þá til skoðunar hvort rétt væri að sakfella karlmanninn fyrir nauðgun. Dómurinn sagði að ekki yrði annað ráðið af samskiptum stúlkunnar við vinkonur sínar en að hún hafi verið sátt og jafnvel stolt af því að hafa misst meydóm sinn. Var því lagt til grundvallar að samfarirnar hefðu verið án sérstakrar eða sértækrar nauðgunar. Stóð þá eftir hvort samræði fullorðins einstaklings við þrettán ára barn teldist ávallt nauðgun í því ljósi að þrettán ára barn gæti undir engum kringumstæðum fallist á samræði við fullorðinn einstakling svo gilt sé. Dómurinn benti á að ekki hefði komið fram að karlmaðurinn hefði notfært sér yfirburðaaðstöðu til að koma fram kynferðislegum vilja sínum og að stúlkan hefði verið varnarlaus. Var hann því sýknaður af ákæru um nauðgun þrettán ára stúlkunnar. Þuklað og rassskellt Í hinu málinu var karlmaðurinn ákærður fyrir að hafa áreitt dóttur kærustu sinnar kynferðislega á heimili hennar og í bíl sínum á árinu 2022. Hann hefði þuklað að minnsta kosti fjórum sinnum á brjóstum hennar innanklæða, reynt tvisvar að færa hönd að kynfærum hennar og í eitt skiptið rassskellt hana og sagt henni að hún væri með flottan rass. Karlmaðurinn hafði verið í sambandi við konuna í um eitt ár. Karlmaðurinn neitaði alfarið sök og sagði stúlkuna bera á sig rangar sakir. Annaðhvort vegna þess að hún kunni ekki vel við hann eða til að þurfa ekki að fara heim úr fjölskylduferð til Spánar sumarið 2022. Héraðsdómur sagði ekkert hafa komið fram sem studdi frásögn hans nema mögulega framburður kærustu hans, móður stúlkunnar. Hún virtist í afneitun gagnvart því að karlmaðurinn gæti nokkurn tímann gert eitthvað á hlut dóttur hennar. Varðandi þetta atriði leit dómurinn til þess að konan glímir við væga þroskaskerðingu eins og dóttir hennar. Í því ljósi megi virða frásögn og afstöðu móðurinnar. Engar ástæður fyrir upplognum sökum Þrátt fyrir þroskahömlun stúlkunnar greindi hún með líkum hætti hjá lögreglu og fyrir dómi hvernig karlmaðurinn hefði brotið gegn henni fyrir Spánarferð fjölskyldunnar. Framburður hennar þótti stöðugur og trúverðugur um sakarefni málsins og greint frá frá því sem hún varð fyrir á einlægan og hófstilltan hátt. Framburður hennar sótti stuðning í endursögn vitna af samtölum við stúlkuna. Dómstóllinn horfði til þess að ekkert haldbært hefði komið fram í málinu sem skýrt gæti af hverju stúlkan bæri rangar og upplognar sakir á karlmaðurinn. Þá hefði hún ekki þá greind að geta haldið stöðugum en röngum framburði. Þótti sannað að karlmaðurinn hefði gerst sekur um áreitni gagnvart dóttur kærustu sinnar. Alvarleg brot og engar málsbætur Við ákvörðun refsingar leit dómurinn til þess að karlmaðurinn hefði gerst sekur um kynferðisbrot gegn tveimur táningsstúlkum. Brotin væru alvarleg. Hann hefði farið yfir öll velsæmismörk þegar hann falaðist eftir kynferðislegu samneyti við stúlku sem hann vissi að væri þrettán ára gömul. Þá voru brot hans framin á stöðum þar sem stúlkan átti að njóta friðhelgi og öryggis í samskiptum við karlmaðurinn, ekki síst vegna þroskahömlunar. Var hún því í sérstaklega viðkvæmri stöðu. Hann ætti sér engar málsbætur. Héraðsdómi þótti tveggja ára fangelsisdómur hæfileg refsing. Þá var hann dæmdur til að greiða þrettán ára stúlkunni eina og hálfa milljón króna í miskabætur en dóttur kærustu sinnar eina milljón króna. Athugasemd ritstjórnar Karlmaðurinn er ekki nafngreindur í frétt Vísis til að gæta að hagsmunum brotaþola í málinu.
Dómsmál Kynferðisofbeldi Ofbeldi gegn börnum Mest lesið Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Innlent Fleiri fréttir Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Sjá meira