Erfiður endasprettur hjá Melsungen í toppslagnum Ágúst Orri Arnarson skrifar 19. október 2023 18:48 Elvar Örn í baráttunni gegn Berlín. Íslendingaliðið Melsungen mátti þola sex marka tap í toppslag þýsku úrvalsdeildarinnar gegn Füchse Berlin. Aðeins eitt mark skildi liðin að þegar sjö mínútur voru eftir en 37-31 varð lokaniðurstaðan.
Melsungen mistókst að nýta sér tækifæri til að jafna Füchse Berlin að stigum í efsta sæti þýsku úrvalsdeildarinnar í handbolta. Melsungen hafði aðeins tapað einum af fyrstu níu leikjum sínum á tímabilinu, en það var nokkuð óvænt tap í þarsíðustu umferð gegn BHC sem situr í 14. sæti deildarinnar. Füchse Berlin er enn ósigrað eftir tíu leiki. Melsungen braut ísinn og tók forystuna í upphafi, en leikurinn var hnífjafn og aldrei komust þeir meira en tveimur mörkum yfir. Heimamenn jöfnuðu loks leikinn þegar um tíu mínútur voru eftir af fyrri hálfleik og komust yfir áður en hann kláraðist. Þeir byrjuðu svo seinni hálfleikinn af krafti og voru fljótt komnir fimm mörkum yfir en Melsungen voru hvergi að baki brotnir. Unnu sig jafnt og þétt til baka inn í leikinn og minnkuðu muninn í eitt stig þegar sjö mínútur voru eftir. En þá tók við stórskotahríð hjá heimamönnum í Füchse Berlin, þeir skoruðu fimm mörk í röð og hleyptu engu skoti gestanna inn fyrr en á lokasekúndum leiksins og að endingu varð það sex marka sigur. Í liði Melsungan skoraði Arnar Freyr Arnarsson eitt mark en Elvar Örn Jónsson gerði fimm mörk og gaf eina stoðsendingu.
Þýski handboltinn Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Finnur til með Arnari Handbolti Sindri áfram í sextán liða úrslit Körfubolti Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira