Díana Dögg frábær í Íslendingaslag Smári Jökull Jónsson skrifar 23. september 2023 23:01 Díana Dögg fór mikinn í kvöld. Zwickau/Ralf Wendland Díana Dögg Magnúsdóttir átti frábæran leik fyrir Zwickau sem vann góðan sigur á Metzingen í þýsku úrvalsdeildinni í handknattleik í dag. Sandra Erlingsdóttir leikur með liði Metzingen.
Leikurinn í dag fór fram á heimavelli Zwickau sem fyrir leikinn hafði tapað báðum leikjum sínum í deildinni til þessa. Metzingen var hins vegar með einn sigur og eitt tap eftir fyrstu tvær umferðirnar. Fyrri hálfleikur var jafn til að byrja með en undir lok hans náði Zwickau áhlaupi og leiddi 13-9 í hálfleik. Metzingen náði ekki að minnka þann mun í upphafi síðari hálfleiks heldur bættu leikmenn Zwickau í. Díana Dögg var að leika frábærlega og forystan varð mest sjö mörk í stöðunni 17-10, Zwickau þá búið að ná 10-3 áhlaupi. Leikmenn Metzingen lögðu þó ekki árar í bát. Þær náðu frábærum kafla og jöfnuðu metin í 19-19 og allt í járnum. Lengra komust þær þó ekki. Díana Dögg skoraði þrjú af næstu fjórum mörkum Zwickau sem komst í 23-20 en Zwickau vann síðustu tíu mínútur leiksins 8-3 og að lokum 27-22 sigur í leiknum. Díana Dögg var frábær eins og áður sagði. Hún skoraði átta mörk í tíu skotum og gaf þrjár stoðsendingar þar að auki. Sandra Erlingsdóttir skoraði tvö mörk fyrir Metzingen og gaf fjórar stoðsendingar.
Þýski handboltinn Mest lesið Þema í tapleikjum Liverpool á þessu ári Enski boltinn Keppir á Steraleikunum en ætlar líka á næstu Ólympíuleika Sport Vilja lífstíðarbann fyrir þjálfara sem tók upp kvenkyns leikmenn í laumi Fótbolti Svona virkar nýja rangstöðuregla Wengers Enski boltinn Saga Elvars er ótrúleg Sport Trump: „Mér er alveg sama hvort Íran tekur þátt í HM“ Fótbolti Þorsteinn Leó með sigurmark á lokasekúndunum Handbolti Gagnrýndi Arsenal fyrir leik liðanna í kvöld Enski boltinn Gullit er hættur að horfa á fótbolta Enski boltinn Liverpool setti afar svekkjandi met Enski boltinn Fleiri fréttir „Mér finnst við eiga mikið inni“ Átta ára hark á enda „Við ætlum að spóla upp þessa brekku“ Þorsteinn Leó með sigurmark á lokasekúndunum Einar Bragi öflugur í mikilvægum Evrópusigri Elliði í liði umferðarinnar eftir mörkin níu gegn Kiel Fleiri breytingar á landsliðinu: Alexandra kemur inn fyrir Ölfu „Leiðinleg tímasetning á þessum meiðslum“ Sigurinn dæmdur af Hauki og félögum því undirskrift vantaði Sonja Lind inn í hópinn fyrir barnshafandi Þóreyju Önnu Skellur fyrir bankabók HSÍ Frábær frammistaða Hauks dugði skammt Sigur hjá Ými en dýrt tap hjá Blæ Sigvaldi á leið í faðm Guðjóns Vals eða Heiðmars? Myndasyrpa: Haukar fögnuðu á heimavelli „Þetta er súrrealísk tilfinning“ „Fyrst og fremst stoltur af leikmönnum liðsins“ „Rætt á fyrsta fundi að stefnt væri að titlum“ Elliði markahæstur í frábærum sigri Uppgjörið: Haukar - ÍR 28-21 | Haukar of stór biti fyrir ÍR Flautumark tryggði Íslendingaliðinu sigur „Með þessa sigurhefð sem við þurfum að búa til“ „Algjör rússibani“ Haukar - Valur 19-23 | Valskonur bikarmeistarar ÍR-ingar kalla á hetju bikarúrslitaleiksins fyrir þrettán árum „Ég ætla ekki að bera ábyrgð á því“ Segir Guðjón Val besta þjálfara heims Bjarni Fritzson: „Svoleiðis eru sigurvegarar, þeir vilja bara vinna leikinn“ Uppgjör: ÍR-KA 32-31 | ÍR í bikarúrslit í fyrsta sinn í tólf ár Viktor Gísli varði vel og skoraði líka í Meistaradeildinni Sjá meira