Kristall Máni og Atli skoruðu báðir í sigri Smári Jökull Jónsson skrifar 23. ágúst 2023 19:06 Kristall Máni Ingason er að byrja vel hjá Sönderjyske. Twitter@SEfodbold Kristall Máni Ingason, Atli Barkarson og samherjar þeirra hjá danska liðinu Sönderjyske unnu 4-0 stórsigur á Köge þegar liðin mættust í næstefstu deild danska boltans í dag.
Kristall Máni gekk til liðs við Sönderjyske nú í sumar frá norska liðinu Rosenborg en Atli Barkarson kom til liðsins í janúar á síðasta ári. Báðir léku þeir með Víkingi þegar liðið varð Íslandsmeistari árið 2021. Sönderjyske tók í dag á móti liði Köge en fyrir leikinn var ljóst að Sönderjyse myndi tylla sér á toppinn með sigri. Það tækifæri ætluðu leikmenn liðsins svo sannarlega ekki að láta renna sér úr greipum. Liðið vann öruggan 4-0 sigur þar sem Kristall Máni og Atli voru báðir á skotskónum. Kristall Máni kom Sönderjyske í 1-0 á 16. mínútu en þetta er annað marks hans í sex leikjum með liðinu. Peter Christiansen tvöfaldaði forystuna aðeins tveimur mínútum síðar og staðan 2-0 í hálfleik. Mads Agger skoraði þriðja markið úr víti á 59. mínútu og Atli Barkarson innsiglaði síðan 4-0 sigur með marki sundarfjórðungi fyrir leikslok. Öruggur 4-0 sigur staðreynd og Sönderjyske því í efsta sæti deildarinnar en liðið er með þrettán stig eftir sex umferðir. Hobro og Fredericia eru í öðru sæti með tólf stig en Hobro á einn leik til góða.
Danski boltinn Mest lesið Van Gerwen kemur trans konunni til varnar: „Þetta er svo sárt“ Sport Amorim getur ekki byrjað alveg strax í nýju vinnunni Enski boltinn Fundað um framtíð Guardiola í vikunni Enski boltinn Teitur spilaði með manni sem dekkaði Jordan og drakk kippu af bjór fyrir æfingar Körfubolti Gagnrýnir blaðamann sem gerði grín að útliti hennar Sport „Ég bað ekki um fjögur stig en fékk fjögur stig“ Sport Íslandsmeistarinn úr leik og þrettán ára gutti stal senunni Sport „Ég vil ekki deyja í sjúkrarúmi heldur í hringnum“ Sport Arteta svekktur eftir jafntefli á Brúnni: „Snýst um að vinna“ Enski boltinn Nistelrooy þakklátur en veit ekki hvað tekur nú við Enski boltinn Fleiri fréttir Hlín í keppni við sjálfa sig um besta markið Frekari breytingar á landsliðshópnum Fundað um framtíð Guardiola í vikunni Amorim getur ekki byrjað alveg strax í nýju vinnunni Arteta svekktur eftir jafntefli á Brúnni: „Snýst um að vinna“ Inter klúðraði gullnu tækifæri til að komast á toppinn Arftaki De Rossi entist í aðeins átta leiki „Frammistaðan var góð“ Nistelrooy þakklátur en veit ekki hvað tekur nú við Orri Steinn spilaði hálftíma í sigri á toppliði Barcelona Ingibjörg á skotskónum og Cecilía Rán varði víti og hélt hreinu Jafntefli sem gerir lítið fyrir bæði lið Nýliðarnir sóttu þrjú stig til Tottenham og Newcastle skellti Forest United menn á allt öðrum og betri stað eftir inngrip Van Nistelrooy Sævar Atli skoraði og fiskaði mikilvægt víti fyrir Lyngby „Velkomin í dal draumanna“ Gleymdi að kjósa Vinicius Junior Barnið þriggja vikna þegar mamman kom inn á og varð sænskur meistari Liverpool hefur áhyggjur af meiðslunum hjá Trent Fram og Reykjavíkurborg semja um frekari framkvæmdir í Úlfarsárdal Messi og félagar óvænt úr leik í fyrstu umferð en Dagur Dan fór áfram Á bara eftir að skora á Anfield og heimavelli Brentford Fer til Eyja og fetar í fótspor föður síns „Því miður gefur sigur á Man City aðeins þrjú stig“ Juventus vann grannaslaginn „Kemur alltaf að því að eitthvað gerist í fyrsta skipti á ævinni“ Tvær breytingar á landsliðshópnum Gestirnir réðu ekki við hraðann í strákunum hans Slot Milan missteig eftir sigurinn frækna á Real Willum Þór lagði upp þegar Birmingham tapaði óvænt stigum Sjá meira