„Vinsældir mótsins hafa alltaf verið miklar,“ segir Pálína Ósk Hraundal, verkefnastjóri Unglingalandsmóts UMFÍ á Sauðárkróki. „Unglingalandsmótin hafa breyst með tíðarandanum og mikil áhersla er alltaf lögð á lýðheilsu barna og ungmenna. Ungmennaandinn skín mjög vel í gegn þessa helgi þar sem aðaláherslan er að vera með, taka þátt og hafa gaman.“

Hægt er að keppa í 19 keppnisgreinum á mótinu og eru sumar þeirra frumlegar og skemmtilegar. Auk þeirra verður líka boðið upp á margar íþróttakynningar segir Pálína. „Það er hægt að keppa í hefðbundnum íþróttagreinum á borð við körfubolta, sund, frjálsum íþróttum og knattspyrnu en einnig í upplestri, stafsetningu og kökuskreytingum.“
Meðal íþróttakynninga sem boðið verður upp á er til dæmis blindrabolti. „Þar kíkjum við inn í heim þeirra sem blindir eru. Boltinn er með bjöllum innan í. Hver keppandi þarf aðstoðarmann sem styður við öxl hans og leiðbeinir.“

Einnig verður boðið upp á badminton LED en þá er slökkt nær alveg á ljósunum í íþróttahúsinu og spilað badminton. „Kúlurnar eru með LED ljósi svo þetta verður eitthvað. Tónlist, badminton og frábær stemmning.“

Það er ekki bara keppt í íþróttum á mótinu heldur er líka boðið upp á fjölbreytta skemmtidagskrá fyrir alla fjölskylduna um helgina. „Andrew Henderson, fimmfaldur heimsmeistari, kemur til okkar frá London en hann mun stýra skemmtilegum vinnubúðum í Football Freestyle. Andrew hefur kennt stórstjörnum í knattspyrnu eins og Ronaldo, Messi og Neymar svo einhverjir séu nefndir og á nokkur met skráð í heimsmetabók Guinness.“
BMX BRÓS verða einnig með hressilega sýningu á tartan-hlaupabrautinni á íþróttasvæðinu á laugardagskvöldinu. „Það eru hreint ótrúlegar kúnstir sem þeir láta sér detta í hug og framkvæma. Hópur landsliðsfólks í fimleikum mætir líka á svæðið og verður með sýningu. Að henni lokinni fá ungmenni að taka þátt og prófa undir styrkri og öruggri leiðsögn landsliðsfólksins. Einnig verður mikið framboð fyrir yngstu garpana eins og hæfileikakeppni, söngvagleði, leikjagarður, sandkastalakeppni og litlir hoppukastalar.“
Á kvöldin tekur svo tónlistin völdin. „Dansveit Dósa heldur uppi stuðinu á föstudagskvöldinu, Herra Hnetusmjör, Valdís Valbjörns og Emmsjé Gauti koma fram á laugardagskvöldinu og á sunnudag mæta þau Magni, Guðrún Árný ásamt Jóni Arnóri og Baldri og sjá um kvöldskemmtunina og brekkusönginn. Þá verður einnig glæsileg flugeldasýning.“

Unglingalandsmótið hefst fimmtudaginn 3. ágúst og lýkur sunnudaginn 6. ágúst.
Mótsgjald er kr. 8.900 kr. og innifalið í því er þátttaka í öllum keppnisgreinum á mótinu, aðgangur að öllum viðburðum á mótinu, aðgangur að öllum sundlaugum í Skagafirði. Aðgangur að tjaldsvæðið mótsins fyrir alla fjölskylduna er einnig innifalinn.
Sambandsaðilar UMFÍ styrkja sumir þátttakendur á sínu svæði að hluta eða öllu leyti. Aðrir veita þátttakendur á sínu svæði ýmsan varning til viðbótar, svo sem peysur eða boli merkta sambandsaðilanum.
Skráning fer fram á umfi.is og skráningarfrestur rennur út á miðnætti þann 31. júlí.
Nánari upplýsingar á umfi.is.