Haaland var markahæsti leikmaður City sem vann þrennuna á síðasta tímabili. Hann er núna í verðskulduðu sumarfríi og nýtur lífsins greinilega.
Haaland og faðir hans, Alf-Inge, sáust nefnilega dansa og syngja við Abba lagið „Gimme! Gimme! Gimme! (A Man After Midnight)“ á skemmtistað á Ibiza.
„Þeir virtust skemmta sér frábærlega,“ sagði sjónarvottur. „Mest öll tónlistin voru dansslagarar en það færðist fjör í leikinn þegar Abba var sett á fóninn og Haaland feðgarnar voru hrókar alls fagnaðar. Það hlýtur að hafa verið þessi skandinavíska sveifla.“
Haaland mætir aftur til æfinga í næstu viku, væntanlega endurnærður eftir gott sumarfrí. City mætir Burnley í fyrsta leik sínum í ensku úrvalsdeildinni 11. ágúst.